Ósáttir Harðarmenn stofnuðu kröfu í heimabanka dómara Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. desember 2024 12:00 Úr leik með Herði frá því liðið lék í Olís-deild karla. vísir/hulda margrét Handknattleiksdeild Harðar fékk 110 þúsund króna sekt vegna kröfu sem var stofnuð í heimabanka dómara sem dæmdi leik Harðar 2 og Vængja Júpíters í 2. deild karla.
Aganefnd HSÍ barst þann 10. desember erindi frá framkvæmdastjóra sambandsins vegna hegðunar forsvarsmanns Harðar eftir leikinn gegn Vængjum Júpíters 30. nóvember. Framkvæmdastjóra HSÍ bárust upplýsingar um að umræddur aðili hafi ítrekað sett sig í samband við annan dómara leiksins og ekki látið af þeirri hegðun þrátt fyrir óskir um það. Þá hafi handknattleiksdeild Harðar stofnað kröfu í heimabanka dómarans að upphæð 150 þúsund krónur. Í kjölfarið barst aganefnd greinargerð frá Herði þar sem fram kom að umræddur aðili sé ekki forráðamaður handknattsdeildar félagsins, heldur styrktaraðili, velunnari og sjálfboðaliði hjá því. Hann hafi ekki komið að því að stofna kröfuna í heimabankanum en félagið staðfesti að hún hafi verið stofnuð á vegum þess. Hún virðist hafa verið réttlætt með því að dómarinn hafi valdið félaginu skaða að því er fram kemur í úrskurði aganefndar. Mat aganefndar er að stofnun kröfunnar í heimabanka dómarans hafi falið í sér óíþróttamannslega háttsemi á vegum Harðar og verið til þess fallin að skaða ímynd handknattleiksíþróttarinnar. Niðurstaða aganefndarinnar var að sekta handknattleiksdeildar Harðar um 110 þúsund krónur. Úrskurð aganefndar má lesa með því að smella hér.
Handbolti Hörður HSÍ Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Fleiri fréttir Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Sjá meira