
„Við erum svo heppin, öll sem komum að þessu en allt þetta ævintýri hefur verið keyrt áfram af gleði og einstökum sköpunarkrafti. Út af stemmingunni varð salan miklu meiri en við áttum von á. Þá var bara að bretta um ermar, endurskipuleggja lagerinn og sækja nýjar vörur og nú er búið að opna á ný. Við ætlum að árita bækur og boli og bara allt sem fólk vill að við áritum,” segir Jón.
Ástsælasta strákaband landsins
Vinsældir Iceguys hafa verið með ólíkindum og sýndu nýafstaðnir tónleikar sveitarinnar það svo um munaði, þeir fylltu Laugardalshöll fimm sinnum á tveimur dögum. Jón þakkar vinsældirnar jákvæðri orku í hópnum og því að enginn taki sig of alvarlega, sem hafi kannski einmitt komið fólki hvað mest á óvart.

„Fólk hélt að það væri að fara að horfa á lélegustu sjálfshátíði í heimi en í staðinn fékk það að sjá virkilega vandaða dagsrkárgerð og okkur gera grin að okkur sjálfum og ýmsu í íslenskri poppmenningu sem fólk gat tengt við.

Tónleikarnir síðustu helgi voru sannarlega hápunkturinn,” segir Jón. Þá hafi leikhæfileikar hópsins komið skemmtilega á óvart.
„Þetta átti bara að vera eitt tónlistarmyndand sumarið 2023 og þegar ég sendi á þessa stráka vissi ég ekkert að við ættum eftir að þurfa að dansa svona mikið, semja svona mikið og hvað þá leika svona mikið. En það hefur verið virkilega fallegt að sjá til dæmis Árna Pál og Aron taka þvílíkum framförum í leiklist. Rúrik er náttúrlega að leika í þýskum Netflixmyndum og við verðum bara að reyna að njóta þess að hafa hann meðan við getum,” segir Jón.

En er verkefnið að taka stífari stefnu nú þegar búið er að opna búð og gefa út bók og prenta á boli í massavís?
„Ég held að um leið og við værum farin að hugsa þetta sem fyrirtæki yrði þetta hundleiðinlegt. Búðin var bara stofnuð því það vantaði stað fyrir fólk til að sækja armbönd fyrir tónleika. Svo er bókin bara partur af því að spila leikinn, hún er ekki til þess að vinna íslensku bókmenntaverðlaunin. Þetta er allt til að auðga líf þeirra sem vilja njóta tónlistarinnar,” segir Jón, gleðin sé enn við völd í hópnum og enginn rígur né drama milli manna.
„Þetta er bara eins og í fótboltanum, bara high fives og faðmlög. Það hjálpar að allir eru með sinn eigin feril, Iceguys er meira bara eins og árshátíð. Um leið og þetta fer að kólna stekk ég frá borði,” segir Jón.
