Viðskipti innlent

Hætta í stjórn vegna yfir­vofandi kaupa á Mann­lífi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vilhjálmur og Hjálmar eru hætti í stjórn Sameinaða útgáfufélagsins. Þeir eiga hvor um sig tæp átta prósent í félaginu.
Vilhjálmur og Hjálmar eru hætti í stjórn Sameinaða útgáfufélagsins. Þeir eiga hvor um sig tæp átta prósent í félaginu.

Hjálmar Gíslason og Vilhjálmur Þorsteinsson eru hættir í stjórn Sameinaða útgáfufélagsins sem gefur út fjölmiðilinn Heimildina. Ástæðan er yfirvofandi kaup útgáfufélagsins á Mannlífi Reynis Traustasonar.

„Eins og málið blasti við okkur þá gátum við alls ekki stutt þetta,“ segir Vilhjálmur í samtali við fréttastofu. Þeir Hjálmar voru á meðal fyrstu hluthafa í Kjarnanum við stofnun hans árið 2013. 

Þeir voru svo tveir af fimm stjórnarmönnum í stjórn Sameinaða útgáfufélagsins sem gefur út Heimildina.

„Það er augljóst að ágreiningsefnin snúa aðallega að þessu Mannlífsmáli sem við erum auðvitað ósáttir við,“ segir Vilhjálmur.

Heimildin varð til í árslok 2022 við sameiningu Stundarinnar og Kjarnans og hefur því starfað í um tvö ár. Reksturinn hefur gengið ágætlega en óhætt er að segja að skiptar skoðanir séu innan hluthafahópsins með fyrirhuguð kaup á Mannlífi.

Elín Guðrún Ragnarsdóttir, stjórnarformaður Sameinaða útgáfufélagsins, segir að viðræður hafi átt sér stað síðan í vor. Hún vonast til þess að gengið verði frá kaupunum fyrir áramót. Mannlíf yrði þá gefið út sem auglýsingadrifinn vefmiðill en með aðra ritstjórnarstefnu en hann hefur verið þekktur fyrir hingað til.

Óvíst er hvaða áhrif vendingarnar í stjórninni hafa á fyrirhuguð kaup nú þegar aðeins þrír eru eftir í stjórn. Hvort þriggja manna stjórn geti tekið ákvörðun um kaup eða hvort fullmanna stjórnina að nýju eftir hluthafafund sem boða þarf þá til.

Yfirgáfu Heimildina á árinu

Jón Trausti Reynisson er framkvæmdastjóri Heimildarinnar og Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir eiginkona hans ritstjóri. Ekki verður þó af fjölskyldusameiningu þótt kalla mætti viðskiptin fjölskylduviðskipti þar sem Jón Trausti er sonur Reynis Traustasonar. Þannig fylgir Reynir ekki Mannlífi til Sameinaða útgáfufélagsins að sögn Elínar.

Ólík sjónarmið hafa verið uppi innan hluthafahópsins um stefnu Sameinaða útgáfufélagsins. Hið sama má segja innan ritstjórnar. Samkvæmt heimildum fréttastofu hugnaðist Þórði Snæ Júlíussyni, fyrrverandi ritstjóra Kjarnans og síðar Heimildarinnar ásamt Ingibjörgu Dögg, ekki markmið hjónanna Ingibjargar og Jóns Trausta að styrkja útgáfufélagið með kaupunum á Mannlífi. Hann yfirgaf Heimildina á árinu og sneri sér að útgáfu eigin fréttabréfs, Kjarnyrt, og svo stjórnmálum.

Þórður var meðal hluthafa í Sameinaða útgáfufélaginu en ef marka má hluthafalistann á vef Heimildarinnar hefur hann selt hlut sinn í félaginu. Fleiri óvænt vistaskipti urðu á Heimildinni á árinu þegar Helgi Seljan ákvað að segja skilið við miðilinn eftir að hafa starfað sem rannsóknarritstjóri Stundarinnar og svo Heimildarinnar í tæp tvö ár. Þá yfirgaf Ingi Freyr Vilhjálmsson rannsóknarblaðamaður fjölmiðilinn í júní til að hefja störf hjá Ríkisútvarpinu.


Tengdar fréttir

Helgi hættur á Heimildinni

Helgi Seljan er einhver þekktasti blaðamaður landsins, margverðlaunaður en hann hefur staðið í ströngu nú í tuttugu ár við að fjalla um stærstu mál samtímans. Nú er það búið. Í bili að minnsta kosti. Helgi hefur ákveðið að henda blaðamannahatti sínum inn í skáp og horfir jafnvel til hafs.

RÚV fær liðsstyrk frá Heimildinni

Ingi Freyr Vilhjálmsson blaðamaður á Heimildinni og áður Stundinni hefur ráðið sig til Ríkisútvarpsins þar sem hann mun meðal annars starfa við útvarpsþáttinn Þetta helst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×