Leggja nýjan jarðstreng til Súðavíkur Lovísa Arnardóttir skrifar 18. desember 2024 19:11 Halldór og Elías skrifa undir. Aðsend Elías Jónatansson, forstjóri Orkubús Vestfjarða, og Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins skrifuðu í dag undir samning um tengingu nýrrar kalkþörungaverksmiðju við Langeyri í Súðavík. Nýr jarðstrengur muni leysa af hólmi núverandi loftlínu til Súðavíkur.
Í tilkynningu kemur fram að um sé að ræða tuttugu kílómetra langan jarðstreng á 33 kV spennustigi. Strengurinn mun liggja mun frá aðveitustöð OV á Ísafirði í nýja aðveitustöð OV sem áformað er að byggja í Súðavík. „Jarðstrengurinn mun auka afhendingaröryggi rafmagns í Súðavík verulega, en Súðavíkurlína er einn veikasti hlekkurinn í dreifikerfi Orkubús Vestfjarða. Samningurinn flýtir áformum Orkubúsins um öruggari tengingu til Súðavíkur um a.m.k. 10 ár. Hið sama má segja um framkvæmdir við nýja aðveitustöð í Súðavík, sem færist um leið af snjóflóðahættusvæði á öruggan stað. Um leið opnast möguleikar á að skapa fleiri ný atvinnutækifæri í Súðavík. Það er ánægjulegt að samkomulagið sé í höfn. Samkomulag sem er forsenda uppbyggingar atvinnutækifæra í Súðavík og eykur um leið afhendingaröryggi raforku á staðnum til almennra neytenda,“ segir Elías Jónatansson, orkubússtjóri, í tilkynningu. Landfylling hæf til byggingar á næsta ári Þá kemur einnig fram í tilkynningu að Íslenska kalkþörungafélagið, Ískalk, geri ráð fyrir því að landfylling verði hæf til byggingar á árinu 2025. Hönnunarvinna standi yfir varðandi hús og tækjabúnað. Þau vonist til þess að útboð geti farið fram síðari hluta vetrarins og að verksmiðja geti tekið til starfa um mitt ár 2027. Ný verksmiðja á samkvæmt tilkynningu að geta framleitt úr 125.000 m3 á ári og er vinnustaður fyrir 20-25 manns auk afleiddra starfa. Halldór Halldórsson forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins.Aðsend „Með samningi OV og Ískalk er komin vissa fyrir því að afhending rafmagns geti átt sér stað og að ekki sé lengur verið að velta fyrir sér að nota gas við þurrkun kalkþörunga. Um leið og þessi samningur styrkir afhendingu rafmagns til Súðavíkur svo um munar er enn mikil vinna eftir við að bæta rafmagnsinnviði Vestfjarða og nauðsynlegt er að framleiða meira rafmagn í sjálfum landshlutanum. Þessi samningur undirstrikar að það sem er gott fyrir fyrirtækin er gott fyrir samfélagið vegna þess að hér haldast í hendur afhendingarmöguleikar fyrir verksmiðju Ískalk sem mun skapa störf í Súðavík og aukið raforkuöryggi fyrir samfélagið,“ segir Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins, í tilkynningu. Auðveldara að takast á við orkuskipti Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, segir afar ánægjulegt fyrir íbúa og samfélagið í Súðavík að Súðavíkurlínan verði leyst af hólmi með lagningu sæstrengs. „ Framboð á raforku til Súðavíkur mun gera kleift að mæta þeirri þörf sem verður vegna verksmiðjureksturs Ískalks við Langeyri, auk þess sem auðveldara verður að takast á við orkuskipti og þá auknu raforkuþörf sem fylgir. Stóraukið svigrúm til afhendingar raforku breytir miklu í allri nálgun á uppbyggingu og þróun byggðar í Súðavík, ekki síst með tilliti til öruggari afhendingar raforku. Að Ískalk muni keyra sína starfsemi á endurnýjanlegri og grænni orku í stað brennslu jarðefnaeldsneytis er í miklu betra samhengi við alla nálgun og áætlanir til lengri tíma varðandi vinnu sveitarfélaga á Vestfjörðum í loftslagsmálum.“ Það var fjölmennt á fundinum þegar skrifað var undir.Aðsend Súðavíkurlína er um 8,5 km löng og var hafist handa við byggingu hennar árið 1956, þá tveir fasar en seinna var bætt við þriðja fasanum. Línan fer upp úr Engidal fyrir botni Skutulsfjarðar yfir Rauðkoll í um 800m hæð og niður Sauradal til Súðavíkur. Línustæðið er mjög erfitt yfirferðar og krefjandi fyrir viðgerðir og viðhald. Með lagningu jarðstrengs mun afhendingargeta í Súðavík margfaldast, en kalkþörungaverksmiðjan verður þar langstærsti notandinn.
Súðavíkurhreppur Orkumál Nýsköpun Ísafjarðarbær Mest lesið Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Viðskipti innlent Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Viðskipti innlent Tekjur meiri af erlendum ferðamönnum og færri starfandi í ferðaþjónustu Viðskipti innlent Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Viðskipti innlent Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Viðskipti innlent Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða Viðskipti innlent Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Viðskipti innlent Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Viðskipti innlent Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Tekjur meiri af erlendum ferðamönnum og færri starfandi í ferðaþjónustu Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Sigrún Ósk ráðin upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Tilkynningum frá verslunareigendum um alvarleg atvik hafi fjölgað „Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Gunnþór verður formaður SFS í stað Guðmundar Heilbrigðiseftirlitið varaði við breytingunum Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Leita að einhverjum til að reka Kolaportið áfram á sama stað Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Hrund nýr fjármálastjóri Íslandshótela Veitingamenn óttist að styggja embættismenn Regluverk setur langborðinu stólinn fyrir dyrnar Kvika segir hvorugt tilboð nægilega gott Keyptu Björgólf strax út úr Heimum Stólaleikur í Svörtuloftum Jón stýrir markaðsmálunum hjá N1 Stefán nýr útvarpsstjóri Sýnar Kastrup opnar á ný eftir karp við heilbrigðiseftirlitið Sjá meira