Engar forsendur fyrir því að raforkuverð til heimila „stökkbreytist“ næstu tvö árin
![Sú krefjandi staða sem núna er að myndast er að stórum hluta afleiðing af ákvörðunum stjórnvalda í fortíðinni, að sögn sérfræðinga Landsvirkjunar, að huga ekki nægjanlega að uppbyggingu á raforkukerfinu. Lítið sem ekkert nýtt framboð mun koma inn á orkukerfið á næstu árum.](https://www.visir.is/i/2F0C9B7A4275411109827BC9E4D5DAA76C6648571B315B017F2FCA781024608E_713x0.jpg)
Sölufyrirtæki með raforku hafa nú þegar keypt að stórum hluta allrar þeirrar orku sem þarf til að mæta eftirspurn almennra notenda til næstu tveggja ára og miðað við meðalverðið í þeim viðskiptum eru engar forsendur fyrir því, að mati Landsvirkjunar, að raforkuverð eigi eftir að „stökkbreytast“ á því tímabili. Sérfræðingar orkufyrirtækisins vekja athygli á því að rafmyntagröftur er á „hraðri útleið“ á Íslandi og vegna þessa hefur raforkunotkun gagnavera minnkað um meira en helming á skömmum tíma.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/8E283A32A6029293371B580C11FF545FE3FCF0CF3851B63C9DFF90AC0E640A73_308x200.jpg)
Raforkuverð á heildsölumarkaði gæti hækkað um 25 prósent umfram verðlag
Útlit er fyrir að sölufyrirtæki með raforku þurfi að óbreyttu að kaupa mánaðarblokkir í auknum mæli á mun hærra verði en áður samhliða því að eftirspurnin eykst meira en framboð og spurningin er aðeins hversu mikið af því muni skila sér í verðhækkunum til heimilanna, að mati sérfræðinga EFLU. Þeir telja „litlar sem engar horfur“ á að það muni rýmkast um á raforkumarkaði á allra næstu árum og áætla að verðhækkanir á heildsölumarkaði á árinu 2025 verði á bilinu um 10 til 25 prósent umfram verðbólgu.
![](https://www.visir.is/i/F609340B620A07A3740124EFF04178B9C4F81A4C2063FE8C7774580F599D74EF_308x200.jpg)
Evrópa er að segja að hún verði að fara íslensku leiðina í orkumálum
Ný skýrsla um samkeppnishæfni Evrópu, sem leiddi meðal annars í ljós að sveiflukennt orkuverð er ein helsta ástæða efnahagsvanda álfunnar, undirstrikar að „íslenska leiðin“ með áherslu á langtímasamninga við stórnotendur er forsenda fjárfestinga og öflugs atvinnulífs, að mati forstjóra Landsvirkjunar. Hann telur að umræða um að grípa mögulega inn í tvíhliða samninga milli Landsvirkjunar og stórra viðskiptavina í tengslum við heimildir til endursölu, með því að kippa þeim úr sambandi eða breyta með lagasetningu, endurspegla „ótrúlega skammsýni og algjört þekkingarleysi.“
![](https://www.visir.is/i/282F1A9C6F44041C13A4BA0D17E1C1FA5B7655A09D5DF340B98BE8BC9BD59D05_308x200.jpg)
Lágt raforkuverð á Íslandi er ekki lögmál
Við getum kosið að halda í þau gildi sem upphaflega var lagt upp með við uppbyggingu raforkukerfis á Íslandi. Að byggja upp hagkvæmt sterkt kerfi sem tryggir öllum Íslendingum aðgengi að raforku á hagstæðu verði.
![](https://www.visir.is/i/8BABC66AAF648E53E98ABCDF7C57AB391C5A787EB5CF9EC9724A72BCB16FCA72_308x200.jpg)
Útboð sýnir að orkuverð mun hækka á næstu árum
Framvirka kúrfan sem teiknaðist upp í raforkuútboði í fyrr í mánuðinum sýnir „svo ekki verður um villst“ að orkuverð mun hækka á næstu árum. Raforkukerfið hér á landi er að óbreyttu fullselt til næstu ára, segir hagfræðingur.