Bíó og sjónvarp

Paul Mescal leiki nafna sinn McCartney

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Mescal hefur um tíð verið bendlaður við hlutverk McCartney, en nú virðist nokkuð ljóst að hann fari með hlutverk í myndunum.
Mescal hefur um tíð verið bendlaður við hlutverk McCartney, en nú virðist nokkuð ljóst að hann fari með hlutverk í myndunum. EPA

Margt bendir til þess að írski leikarinn Paul Mescal komi til með að leika söngvarann Paul McCartney í kvikmyndaröð Sam Mendes um Bítlana. Stefnt er að því að búa til eina kvikmynd um hvern Bítil fyrir sig. 

Mescal hefur um hríð verið bendlaður við hlutverk nafna síns en hann hefur vakið mikla athygli síðustu misseri fyrir hlutverk sitt í Gladiator II. 

Stefnt er að því að ein bíómynd verði gerð um hvern og einn Bítil í kvikmyndaröð Mendes. Nýlega greindi Ringo Starr trommuleikari Bítlanna að írski leikarinn Barry Keoghan muni leika hann í myndinni um sig. 

Í umfjöllun Hollywood Reporter segir að Ridley Scott, leikstjóri Gladiator II, hafi misst það út úr sér á pallborði með leikstjóranum Cristopher Nolan að hann gæti ekki unnið með Mescal í bráð „þökk sé Bítlunum“.

Hann hafi ætlað að fá Mescal til að leika í sínu næsta verkefni, en hann gæti þurft að falla frá þeim áætlunum vegna þess að hann sé á leið í annað verkefni, sem tengist Bítlunum. 

Menningartímaritið Variety hefur eftir tveimur heimildum sem standa nærri framleiðslu myndanna að Mescal muni fara með hlutverk í myndunum, þó enn hafi ekki verið undirritaður samningur. 

Mescal sagði í viðtali við Entertainment Tonight að það yrði algjör draumur að fá að leika McCartney. Aðspurður hvort hann myndi fara með hlutverkið sagði hann: „Nei, nei, nei, ég ætla ekki að svara því.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.