Borgarleikhúsið setur upp Moulin Rouge Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 10. desember 2024 16:34 Brynhildur Guðjónsdóttir mun leikstýra íslensku uppfærslunni sem byggir á kvikmynd Baz Luhrman með Nicole Kidman og Ewan McGregor í aðalhlutverki. Borgarleikhúsið hefur tryggt sér sýningarrétt á nýrri útfærslu Nordiska Production á Moulin Rouge! söngleiknum sem frumsýndur verður á Stóra sviðinu í september 2025.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Borgarleikhúsinu. Þar kemur fram að Moulin Rouge! söngleikurinn byggi á Óskarsverðlaunamynd Baz Luhrmann frá árinu 2001 sem skartaði þeim Nicole Kidman og Ewan MacGregor í aðalhlutverkum. Árið 2018 leit söngleikurinn dagsins ljós í Boston og ári síðar var hann frumsýndur á Broadway þar sem hann gengur enn fyrir fullu húsi að því er segir í tilkynningunni. Sýningin hlaut tíu Tony® verðlaun, meðal annars sem besti söngleikurinn, fyrir leikstjórn, kóreógrafíu og tónlistarútsetningu. Í tilkynningunni segir að líkt og í kvikmynd Baz Luhrmann sé tónlistin í söngleiknum listilega fléttuð saman úr lögum og tónverkum úr ýmsum áttum, þar á meðal mörgum af þekktustu slögurum tónlistarsögunnar allt frá Bizet til Bowie og Beyonce. Nicole Kidman og Ewan McGregor í hlutverkum sínum í kvikmyndinni Moulin Rouge frá árinu 2001. Íslandsfrumsýning í leikstjórn Brynhildar Guðjónsdóttur Söngleikurinn Moulin Rouge! gerist í París þar sem söngvaskáldið Christian kemur til borgarinnar í leit að innblæstri. Honum er tekið opnum örmum af bóhemum Montmartre sem vinna að söngleik sem þá dreymir um að verði settur upp í Rauðu Myllunni. Skáldið unga slæst í lið með þeim en verður ástfanginn af stjörnu Myllunnar – hinni óviðjafnanlegu Satine. Leikstjóri íslensku uppfærslunnar verður Brynhildur Guðjónsdóttir, leikhússtjóri Borgarleikhússins. Tónlistarstjóri er Jón Ólafsson og þýðing er í höndum Braga Valdimars Skúlasonar. Að sögn aðstandenda verður uppsetning Borgarleikhússins á Moulin Rouge! söngleiknum stórbrotin upplifun fyrir augu, eyru og hjarta. Í tilkynningu leikhússin segir að öllu verði til tjaldað hvað varðar leik- og hljóðmynd og besta sviðslistafólk landsins fengið til að flytja okkur inn í grípandi heim Rauðu Myllunnar í París 1899. „Það er stórkostleg tilfinning að geta loksins greint frá því að söngleikurinn Moulin Rouge! sé á leið í Borgarleikhúsið,“ segir Brynhildur Guðjónsdóttir, leikhússtjóri. „Við erum búin að vinna lengi að því að tryggja okkur titilinn og nú hefst undirbúningurinn fyrir alvöru. Það fer óneitanlega fiðringur um leikstjórann að vera að stíga inn í heim Rauðu myllunnar sem Baz Luhrmann gerði ódauðlega í rómaðri kvikmynd sinni. Eldheit ástarsaga, stórkostleg tónlist og gildi bóhemanna ofar öllu: frelsi, fegurð, sannleikur, ást. Það gerist ekki heitara – verið velkominn í Rauðu mylluna!“ Rauða myllan í París.Vísir/Getty Farið sigurför um heiminn Söngleikurinn Moulin Rouge! hefur verið sýndur víða um heim. Borgarleikhúsið tryggði sér réttinn til að sýna verkið í gegnum réttindaskrifstofu Nordiska sem fer með sýningarrétt nýrrar útfærslu (e. non replica) söngleiksins á Norðurlöndum. Þar með fylgir Reykjavík í fótspor Osló, Stokkhólms, Helsinki og Kaupmannahafnar þar sem söngleikurinn hefur verið settur upp frá haustinu 2023 við gríðarlegar vinsældir og einróma lof gagnrýnenda, að því er segir í tilkynningu. Moulin Rouge í París, undir forystu Jean-Jacques Clerico, forstjóra, er stórbrotinn, glæsilegur heimur og tákn fyrir Parísarskemmtanir allt frá árinu 1889. Upphaflega opnaði staðurinn sem vinsæll kabarett- og dansstaður en öðlaðist sess sem goðsagnakenndur vettvangur fyrir tónleikasýningar á þriðja áratug 20. aldarinnar, og síðar sem leikhús þar sem margir frægir franskir og alþjóðlegir listamenn tróðu upp. Í dag býður Moulin Rouge upp á revíusýninguna Féerie, þar sem sextíu flytjendur taka þátt í tveggja tíma flutningi þar sem skipt er á milli dansatriða, og óvæntra uppákoma – þar á meðal hins fræga franska Can-can dans. Frá upphafi hefur Moulin Rouge boðið gestum sínum að upplifa gleði og tilfinningar í gegnum einstakar og íburðamiklar skrautsýningar Moulin Rouge! söngleikurinn var heimsfrumsýndur í Boston 2018 og náði fljótt alþjóðlegri velgengni. Ári síðar var söngleikurinn frumsýndur á Broadway þar sem hann fékk mikið lof áhorfenda jafnt sem gagnrýnenda og vann til tíu Tony verðlauna. Velgengni söngleiksins hefur haldið áfram og er söngleikurinn enn sýndur fyrir fullu húsi á Broadway auk þess hann er sýndur í London, Köln, Utrecht og á leikferð í Norður Ameríku. Sýningarferð um heiminn hefst í Edinborg í apríl 2025. Fyrri sviðssetningar hafa meðal annars verið í Tokyo og Osaka (2023 og 2024), Seoul (2023) og sem hluti af ástralskri leikferð árin 2021-2024. Framleiðandur Moulin Rouge! söngleiksins eru Carmen Pavlovic og Gerry Ryan hjá Global Creatures ásamt Bill Damaschke.
Menning Leikhús Tónlist Reykjavík Mest lesið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Bíó og sjónvarp Keppast um að minnast Stewarts Lífið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Fleiri fréttir Fjórðungur ekki með bókasafnskort Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Hlátrasköll hjá heitum hönnuðum Hlýtur Vigdísarverðlaunin 2026 Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Í fyrsta sinn utan Úkraínu Ragnheiður Harpa hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Hilmir Snær svarar gagnrýnendum „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Tímamót hjá Árna Má Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Stella í orlofi á stóra sviðið Menningarsprautur í hvísluleik Kát á kynfræðslukarnivali Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið