Innlent

Reif í hár konu svo hún féll í gólfið og samdi svo við hana

Árni Sæberg skrifar
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt konuna til eins mánaðar skilorðsbundins fangelsis.
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt konuna til eins mánaðar skilorðsbundins fangelsis. Vísir/Vilhelm

Kona hefur verið dæmd til eins mánaðar skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir líkamsárás gegn annarri konu. Undir rekstri málsins sömdu konurnar um bætur og konan játaði sök.

Í dómi Héraðsdóms Reykjaness, sem kveðinn var upp 2. desember, segir að konan hafi verið ákærð fyrir líkamsárás með því að hafa í apríl 2022 veist að konu með ofbeldi og rifið í hár hennar með þeim afleiðingum að hún féll í gólfið og hlaut eymsli yfir hársverði, eymsli yfir hryggjartindum í hálsi, eymsli yfir hnjám, mar á öxl og upphandlegg og tognun og ofreynslu á lendhrygg.

Neitaði upphaflega sök

Í málinu hafi brotaþoli krafist þess að konan yrði dæmd til að greiða henni 800 þúsund krónur auk vaxta og málskostnaðar.

Konan hafi í upphafi neitað sök en undir rekstri málsins hafi hún og brotaþoli náð sátt sín á milli og brotaþoli breytt bótakröfu sinni í það horf sem rakið hefur verið. Konan hafi í kjölfarið komið fyrir dóminn og játað sök.

„Fyrir dómi lýsti ákærða einnig yfir að hún bæði brotaþola innilega afsökunar á brotinu,“ segir í dóminum.

2,7 milljónir króna

Þá segir að með játningu konunnar, sem fengi næga stoð í gögnum málsins, teldist hún sönn að sök samkvæmt ákæru. Samkvæmt sakavottorði hafi konunni ekki áður verið gerð refsing. Þegar á allt væri horft ákvæðist refsing konunnar fangelsi í einn mánuð en fullnustu hennar skyldi frestað og hún falli niður að liðnum tveimur árum, haldi konan almennt skilorð.

Konan hafi verið dæmd til að greiða brotaþola 800 þúsund krónur samkvæmt samkomulagi þeirra á milli. Brotaþoli hafi sömuleiðis farið fram á málskostnað og fyrir lægi tímaskýrsla vegna vinnu lögmanna fyrir brotaþola vegna málsins frá upphafi.

Því væri hún dæmd til að greiða brotaþola 1,24 milljónir króna í málskostnað. Loks hafi hún verið dæmd til að greiða skipuðum verjanda sínum 645 þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×