Fótbolti

Setti tvö og var bestur á vellinum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Ísak Bergmann Jóhannesson fór mikinn í dag.
Ísak Bergmann Jóhannesson fór mikinn í dag. Getty/Daniel Löb

Ísak Bergmann Jóhanesson fór mikinn með liði Fortuna Dusseldorf sem vann 5-0 sigur á Einstracht Braunschweig í þýsku B-deildinni í dag.

Óhætt er að segja að Dusseldorf hafi byrjað leik dagsins í Þusslaraþorpi af krafti en liðið var komið 3-0 yfir eftir aðeins ellefu mínútna leik. Ísak skoraði annað mark liðsins á 9. mínútu.

Staðan var 3-0 í hálfleik en Ísak skoraði fjórða mark Dussedorf á 70. mínútu áður en Dzenan Pejcinovic innsiglaði 5-0 sigur liðsins undir lokin.

Pejcinovic hafði komið inn af varamannabekknum fyrir Ísak á 77. mínútu. Valgeir Lunddal Friðriksson spilaði 82 mínútur sem hægri vængbakvörður fyrir Dusseldorf í leiknum. Ísak Bergmann spilaði á miðjunni og var valinn maður leiksins.

Dusseldorf er í fimmta sæti jafnrar deildarinnar. Paderborn er efst með 27 stig en aðeins fjögurs stig aðskilja efsta og níunda sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×