Innlent

MAST starfar á neyðarstigi

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Matvælastofnun starfar á neyðarstigi vegna fuglainflúensu.
Matvælastofnun starfar á neyðarstigi vegna fuglainflúensu. Vísir

Matvælastofnun starfar nú á neyðarstigi vegna skæðar fuglainflúensuveiru. Flensan kom upp í kalkúnabúi á Auðsholti í Ölfusi á þriðjudag. Allir fuglar sem komust í snertingu við veiruna hafa verið aflífaðir.

Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að þetta sé í fyrsta skipti sem skæð fuglainflúensa greinist hérlendis í alifuglabúi.

Manneskjur sem eru mikið í náinni snertingu við sýkta fugla geta smitast af inflúensunni en ekki er hætta af neyslu afurða. 

Stofnunin hefur starfað á óvissustigi síðan í október þegar í fuglaveira greindist í fyrsta skipti á þessu ári í villtum fuglum. Vegna smitsins í Auðsholti fyrr í vikunni starfa þau nú á neyðarstigi.

Þegar neyðarstig er í gildi leggur Matvælastofnun til við ráðherra að fyrirskipaðar verða tímabundnar varnaraðgerðir til að fyrirbyggja útbreiðslu.

Þá eiga allir fuglar á smituðu búi að vera aflífaðir á mannúðlegan hátt, sem hefur nú þegar verið gert á Auðsholti. Einnig var allur búnaður sótthreinsaður og þrifinn.

Veiran er af gerð H5N5 sem er sama veiran og greindist í villtu fuglunum nú í október en á Matvælastofnun eftir að athuga hvort að um sama afbrigði sé að ræða.

Meðgöngutími flensunnar getur verið allt að fjórtán dagar og geta aðrir fuglar verið sýktir þótt að einkenni séu ekki til staðar. Matvælastofnun mælir með að allir fuglaeigendur gæti sóttvarna og að þeir séu í yfirbyggðum gerðum eða húsum.

Þeir fuglaeigendur sem búa í 10 kílómetra radíus við Auðsholt fylgja strangari reglum, sem dæmi má ekki flytja fugla eða neitt sem gæti smitað aðra fugla nema með sérstöku leyfi.

Ekki náðist í fulltrúa Matvælastofnunar við vinnslu fréttarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×