Körfubolti

Njarð­víkingar bæta við sig

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Evans Ganapamo er nýjasti leikmaður Njarðvíkur.
Evans Ganapamo er nýjasti leikmaður Njarðvíkur. getty/Julien Bacot

Evans Ganapamo er genginn í raðir Njarðvíkur. Hann er tveggja metra þrítugur bakvörður.

Ganapamo er landsliðsmaður Mið-Afríkulýðveldisins en foreldrar hans eru þaðan. Hann er fæddur í Frakklandi og er með franskt vegabréf.

Síðast lék Ganapamo með Bangui Sporting Club í Mið-Afríkulýðveldinu. Hann hefur einnig leikið í Þýskalandi, Frakklandi, Suður-Afríku og Kanada. Þá lék hann með New Orleans háskólanum í Bandaríkjunum.

Njarðvíkingar hafa komið mörgum á óvart með frammistöðu sinni á tímabilinu en þeir sitja í 3. sæti Bónus deildarinnar.

Næsti leikur Njarðvíkur er gegn Selfossi í sextán liða úrslitum VÍS-bikarsins á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×