Atalanta á toppinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ademola Lookman fagnar sigurmarki sínu gegn AC Milan.
Ademola Lookman fagnar sigurmarki sínu gegn AC Milan. getty/Giuseppe Cottini

Ademola Lookman skoraði sigurmark Atalanta gegn AC Milan, 2-1, í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Með sigrinum komst Atalanta á topp deildarinnar.

Þetta var níundi sigur Atalanta í deildinni í röð. Liðið er nú með 34 stig, tveimur stigum á undan Napoli sem getur endurheimt toppsætið með því að vinna Lazio á morgun.

Charles De Ketelaere kom Atalanta yfir með skallamarki á 12. mínútu en Álvaro Morata jafnaði tíu mínútum síðar eftir sendingu frá Rafael Leao. 

Þegar þrjár mínútur voru til leiksloka skoraði Lookman svo sigurmark heimamanna. Lokatölur í Bergamo 2-1, Atalanta í vil.

Í fyrri leik dagsins sigraði Inter Parma, 3-1, á heimavelli. Inter er í 3. sæti deildarinnar með 31 stig, þremur stigum á eftir Atalanta. Liðið hefur aðeins tapað einum af fjórtán deildarleikjum sínum á tímabilinu.

Federico Dimarco kom Inter yfir fimm mínútum fyrir hálfleik og á 53. mínútu jók Nicolo Barella muninn í 2-0. 

Marcus Thuram skoraði svo þriðja mark Inter á 66. mínútu. Þetta var tíunda deildarmark hans í vetur. Matteo Darmian skoraði síðan sjálfsmark níu mínútum fyrir leikslok og minnkaði muninn í 3-1 fyrir Parma. Fleiri urðu mörkin ekki og Inter vann góðan sigur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira