Innlent

Fá engin svör og í­huga réttar­stöðu sína

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Margrét Dagbjört Flygenring Pétursdóttir er foreldri barns á Leikskóla Seltjarnarness og fulltrúi í foreldraráði skólans.
Margrét Dagbjört Flygenring Pétursdóttir er foreldri barns á Leikskóla Seltjarnarness og fulltrúi í foreldraráði skólans. vísir

Foreldrar barna á Leikskóla Seltjarnarness íhuga réttarstöðu sína vegna útfærslu verkfalls kennara á fáum útvöldum leikskólum. Foreldrar séu í mikilli óvissu varðandi hvað taki við eftir áramót og hafa sent fyrirspurnir á Kennarasambandið en engin svör fengið. 

Í gær var greint frá því að stjórnir og samninganefndir Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum hafi tekið þá ákvörðun að verkföll hefjist ekki aftur í Fjölbrautarskóla Suðurlands verði enn ósamið í kjaradeilunni þann 1. febrúar. Í staðinn muni hugsanlegar aðgerðir beinast að öðrum framhaldsskólum.

Ótímabundin verkföll stóðu yfir í fáum útvöldum leikskólum áður en aðgerðum var frestað í síðustu viku. Margrét Dagbjört Flygenring Pétursdóttir, foreldri barns á Leikskóla Seltjarnarness og fulltrúi í foreldraráði segir foreldra í mikilli óvissu varðandi framhaldið en þeir hafi ekki fengið nein svör né loforð á borð við þau sem Fjölbrautarskóli Suðurlands hafi veitt.

„Nei við höfum í rauninni bara séð þessa yfirlýsingu Kennarasambandins og það má ekki skilja hana á annan hátt en að við séum á leið aftur í verkfall þann 1. febrúar ef það verður ekki búið að semja.“

Hafa ekki fengið svör við fyrirspurnum

Foreldrar hafi sent formlegt erindi á Harald F. Gíslason, formann Félags leikskólakennara og á Magnús Þór Jónsson, formann Kennarasambandsins á mánudaginn varðandi framhaldið en hafa engin svör fengið.

„Það virðist ekki vera vilji til að breyta neinu þrátt fyrir mikið ákall úr mörgum áttum og alvarlegar gagnrýnisraddir á þessa framkvæmd.“

Foreldrar bugaðir

Hún tekur það fram að hún styðji kjarabaráttu kennara en gagnrýnir útfærslu verkfallsins þar sem nokkrar fjölskyldur séu notaðar í baráttunni. Foreldrar séu bugaðir og finnist óhugsandi að verða settir í sömu stöðu eftir tvo mánuði. 

Margir séu búnir að ganga á allt sumarfrí og nýta alla velvild hjá vinnuveitanda. Margrét veit um nokkra sem hafa misst vinnuna og aðra sem hafa sagt starfi sínu lausu því þeir hafi lítið sem ekkert bakland. Þá séu dæmi um að foreldrar hafi lent á spítala.

„Þetta er mjög alvarleg staða. Það er mikil ábyrgð fólgin í því að fara í svona aðgerðir og mikið ábyrgðarleysi að bregðast ekki við gagnrýnisröddum.“

Íhuga réttarstöðu sína

Hún skorar á fulltrúa kennarastéttarinnar að svara fyrirspurnum foreldra.

„En svo bara skora ég enn einu sinni á þau að endurhugsa þessar aðgerðir sem við teljum ólögmætar. Foreldrar eru að skoða réttarstöðu sína, við teljum þetta vera ólögmæta aðgerð.“


Tengdar fréttir

Kennaraverkfalli frestað

Verkfalli kennara hefur verið frestað um tvo mánuði. Innanhússtillaga Ríkissáttasemjara þess efnis var samþykkt um klukkan 15. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×