Körfubolti

Teitur hefði grætt næstum því eina milljón á Lengjunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Teitur Örlygsson var heldur betur sannspár um leikina fjóra i Bónus deild karla í gær.
Teitur Örlygsson var heldur betur sannspár um leikina fjóra i Bónus deild karla í gær. Vísir/Vilhelm

Teitur Örlygsson var afar sannspár fyrir leiki gærkvöldsins í Bónus deild karla í körfubolta.

Teitur fylgdist með leikjunum fjórum í Skiptiborðinu ásamt Herði Unnsteinssyni og Ómari Sævarssyni.

Fyrir leik þá fékk Hörður sérfræðinga sína til að spá fyrir sigurvegarana í leikjunum.

Teitur spáði Haukum fyrsta sigri sínum í vetur og það á móti Íslandsmeisturum Vals á þeirra eigin heimavelli.

Hann spáði einnig sigri hjá Njarðvík á móti Grindavík, að ÍR myndi vinna KR í Vesturbænum og að Þór myndi vinna Hött í Þorlákshöfninni.

Allt þetta gekk eftir og eftir að úrslitin voru ljós þá var Teitur áhugasamur að fá vita stuðlana á Lengjunni.

„Ég á eftir að kaupa jólagjafir,“ sagði Teitur léttur þegar hann spáði og talaði síðan um jólagjöf fyrir konuna eftir að úrslitin voru ljós.

Hefði hann sett tíu þúsund krónur á þessi fjögur úrslit þá hefði hann unnið 986 þúsund krónur á Lengjunni.

  • Stuðlarnir á leikjunum sem Teitur spáð rétt
  • Sigur Hauka á Val: 6,21
  • Sigur ÍR á KR: 4,12
  • Sigur Þór á Hetti: 1,60
  • Sigur Njarðvíkur á Grindavík: 2,41
  • Samtals stuðull: 98,65



Fleiri fréttir

Sjá meira


×