Gjafabréf sem búa til ógleymanlegar minningar í íslenskri náttúru Arctic Adventures 10. desember 2024 11:09 Hægt er að nýta gjafabréf frá Arctic Adventures í ótal skemmtilegar ferðir, t.d. í snjósleðaferðir, hvalaskoðun, jöklagöngu og hellaskoðun. Útivist og samvera í íslenskri náttúru er ein besta jólagjöf sem völ er á. Þessi skothelda blanda skapar ógleymanlegar minningar og styrkir tengsl á einstakan hátt. „
Það er fátt sem toppar gjöf sem býður upp á upplifun og ævintýri á fallega landinu okkar,“ segir Birta Ísólfsdóttir, framkvæmdastjóri sölu, markaðsmála og þjónustuupplifunar hjá Arctic Adventures. „Slíkar gjafir skapa minningar sem endast lengur en nokkuð efnislegt og eru fullkomin leið til að njóta þess sem landið hefur upp á að bjóða. Svo er þetta auðvitað fullkomin gjöf fyrir fólk sem á allt! Gjafabréf frá Arctic Adventures eru því tilvalin í jólapakkann.“ „Það er fátt sem toppar gjöf sem býður upp á upplifun og ævintýri á fallega landinu okkar,“ segir Birta Ísólfsdóttir, framkvæmdastjóri sölu, markaðsmála og þjónustuupplifunar hjá Arctic Adventures. Arctic Adventures býður upp á mikið úrval af spennandi ferðum að sögn Birtu sem nefnir nokkrar vinsælar ferðir sem henni finnst tilvalið að nýta gjafabréf í. Into the Glacier „Into the Glacier eru manngerð göng í Langjökli. Þau eru ótrúlegt mannvirki og mikil upplifun að heimsækja þau. Þetta er fullkomin dagsferð fyrir alla aldurshópa sem inniheldur ferðalag í ofurjeppa og fræðslu um jökulinn. Á leiðinni má sjá mörg þúsund ára lög af ösku og ís sem alveg einstakt sjónarspil. Til að toppa upplifunina mæli ég með að bæta við snjósleðaferð upp að hellinum.“ Jöklaganga á Sólheimajökul „Oft gleymum við Íslendingar hvað við erum lánsöm með jöklana okkar en jöklagöngur eru eitthvað sem allir þurfa að prófa að mínu mati. Göngurnar eru leiddar af framúrskarandi leiðsögumönnum í mögnuðu landslagi. Þær eru frábær leið til að kynnast afli náttúrunnar og læra um áhrif loftslagsbreytinga á umhverfið.“ Hvalaskoðun „Það er ekki að ástæðulausu sem ferðamenn koma sérstaklega hingað til lands til að sjá hvali í sínu náttúrulega umhverfi. Það er algjörlega magnað að sjá þessi stórkostlegu og kláru dýr úr nálægð. Um er að ræða skemmtilega sjóferð með veitingum um borð og ekki skemmir fyrir að sjá Reykjavík frá nýju sjónarhorni.“ Raufarhólshellir „Ferðin í Raufarhólshelli kom mér skemmtilega á óvart. Það er ekki oft sem maður getur beinlínis labbað ofan í jörðina og séð áhrif eldgosa með eigin augum. Í hellinum er ótrúleg litadýrð auk þess sem þar myndast ísdrangar á veturna sem gerir ferðina jafnvel enn áhrifameiri. Ferðin er þægileg og stutt frá höfuðborginni, fullkominn bíltúr.“ Snjósleðaferðir „Hver elskar ekki snjósleðaferðir? Það er fátt er betra en að þeysast um á glitrandi jökulbreiðunni. Ég mæli hiklaust með þessari ferð fyrir þá sem vilja njóta náttúrufegurðar og fá smá adrenalínkikk í leiðinni.“ Snorkl í Silfru „Að snorkla í Silfru ætti að vera á „bucket“ lista allra landsmanna. Silfra er meðal tærustu vatna í heimi þar sem þú flýtur milli tveggja meginlandsfleka. Sjónarspilið undir vatninu er ólíkt öllu öðru og veitir oft mikla hugarró, upplifunin fyrir mér er eins og góð hugleiðsla.“ Gjafabréfin frá Arctic Adventures eru þeim kostum gædd að viðtakandinn getur einfaldlega valið þá upplifun sem hentar best. „Hvort sem það er jöklaganga, hvalaskoðun, snorkl í Silfru eða ógleymanleg ævintýraferð, þá færa gjafabréfin okkar fólk nær íslenskri náttúru og gefa því tækifæri til að skapa minningar sem munu endast ævina.“ Hægt er að kaupa gjafabréfin með því að senda póst á info@adventures.is.
Jól Jólagjafir fyrirtækja Ferðalög Mest lesið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Fleiri fréttir Þetta hefur gefið mér nýtt líf Húð- og feldumhirðuvörur sem draga úr ofnæmisvöldum frá hundum og köttum Hárlos hjá körlum: Hvað veldur og hvernig er hægt að grípa inn í? Nýr rafbíll BMW afhjúpaður í Hörpu Tannhjálp sinnir nauðsynlegri neyðarþjónustu tannlækna Nú er rétti tíminn til að huga að útisvæðinu „Sumarið byrjar hjá okkur“ Eva Laufey segir Hagkaup tilbúið í björtustu dagana Gerðu pallinn og svalirnar að uppáhaldsstað sumarsins! Hvernig tannlæknar leysa algeng útlitsvandamál Kaldir pottar eru orðnir hluti af daglegri rútínu margra landsmanna Nespresso 40 ára: Afmælishátíð með vinningum að verðmæti milljón króna Golfvöllurinn í Eyjum tilnefndur sem sá besti í Evrópu Opnir fræðslufundir fyrir almenning um lífeyrismál Situr þú eins og rækja? Góð líkamsstaða byrjar á réttum stól Skóspark og Krakkadagar hjá Icewear: Gengið inn í vorið E.T. sýnd við lifandi undirleik Sinfó í Hörpu Infraklefar og sánur eru heilsutrendið sem allir eru að tala um Hugarafl er staður þar sem karlmenn fella niður grímuna Tryggðu þér sæti í sólinni áður en sumarið fyllist Pungrakvélin hefur slegið í gegn hjá Chad Grooming Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Íslenskt heiðalamb frá Kjarnafæði í nýjum páskaumbúðum Galdurinn á bak við hinn fullkomna ljóma Sjá meira