Viðskipti innlent

Búið að draga tennurnar úr jagúarnum

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Kári Sævarsson, eigandi vörumerkjastofunnar Tvist segist marka ákveðna stefnubreytingu hjá Jaguar.
Kári Sævarsson, eigandi vörumerkjastofunnar Tvist segist marka ákveðna stefnubreytingu hjá Jaguar. vísir

Nýtt lógó breska lúxusbílaframleiðandans Jaguar markar ákveðna stefnubreytingu hjá félaginu að sögn eiganda vörumerkjastofu. Merkið er umdeilt en með breytingunni séu vígtennurnar dregnar úr jagúarnum. 

Breytingin kemur fram í nýrri auglýsingu þar sem vægast sagt fer lítið fyrir bílum en farartækið vinsæla sést ekki einu sinni í auglýsingunni.

Eigandi vörumerkjastofunnar Tvist segir of snemmt að dæma um hvort vel hafi tekist til. Grafískir hönnuðir séu vissulega ósáttir en eitt er víst, fólki sé illa við breytingar.

„Þetta virkar dálítið groddalegt, mögulega eru hönnuðir búnir að horfa of mikið í tískustrauma og það sem búið er að vera í gangi á undanförnum árum. Það sem við höfum verið að sjá í tískugeiranum er að lógó eru mörg að fletjast út og mörg tískuhús sem höfðu áður einkennandi lógó eru í dag orðin öll eins,“ segir Kári Sævarsson, eigandi vörumerkjastofunnar Tvist.

Hér eru dæmi um rótgróin vörumerki sem hafa tekið breytingum í þá átt sem Kári vísar til.tvist

Töluverð umræða er um breytinguna á samfélagsmiðlinum X þar sem flestir velta því fyrir sér hvort bílaframleiðandinn selji enn bíla eftir breytinguna. Kári segir um vissa stefnubreytingu að ræða.

„Við getum orðað það þannig að þetta sé evrópskt bílavörumerki að leita að nýjum markhópi af því að þeir eru búnir að mýkja ímyndina töluvert með þessu, draga vígtennurnar svolítið úr jagúarnum. Og eru að breyta sjónarhorninu á vörumerkið frá því að snúast um bíla, krafta, karlmennsku og árásargirni og yfir í að vera ákveðin tíska og fjölbreytni.“

Af viðbrögðum að dæma sá ákveðið stríð milli tveggja hópa.

„Það má segja að þeir hafi lent í ákveðinni víglínu í þessu woke, antiwoke stríði og þá sjáum við að varðmenn gömlu gildana ætla heldur betur að láta þá finna fyrir því.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×