Helga Jónasdóttir aðstoðarskólastjóri VMA staðfesti í samtali við fréttastofu í morgun, frásögn skólameistara VMA frá því á Vísi í gær um að hún hefði beðið fulltrúa Miðflokksins um að fara út úr húsnæði skólans.
Sigríður Huld Jónsdóttir skólameistari VMA sagði á Vísi í gær að aðstoðarskólastjóri hefði vísað Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni formanni Miðflokksins og tveimur fulltrúum flokksins út úr skólanum fyrir að teikna myndir og skrifa á kosningavarning Framsóknarflokksins og Flokks fólksins.
Spurð spjörunum úr á kosningaviðburði
Forsaga málsins er að nemendafélag skólans stóð fyrir kosningaviðburði í skólanum í gærmorgun. Þangað hafi fulltrúar flokkanna í Norðausturkjördæmi mætt en viðburðurinn var á vegum verkefnisins #Égkýs.
Sigríður sagði að fulltrúi Miðflokksins á fundinum hafi fengið spurningar frá nemum um tolla og hvort það væri rétt að formaður Miðflokksins hafi farið á bar og talað illa um konur og fatlað fólk. Þessu hafi verið vel svarað af fulltrúa Miðflokksins.
Undir lok skóladags hafi formaðurinn og tveir aðrir fulltrúar flokksins svo mætt í húsnæði skólans að sögn til að svara spurningunni um tolla. Stuttu síðar hafi hún frétt af því að aðstoðarskólastjórinn hafi vísað þeim út skólanum.
Segir frambjóðendur Miðflokksins hafa uppnefnt son sinn
Foreldri nemendans sem bar upp spurninguna um tollana á fundinum segir í færslu á Facebook að frambjóðendur Miðflokksins í kjördæminu hafi uppnefnt son sinn þegar þeir mættu í skólann í gær og talað niður til hans með því að halda því fram að spurningin væri komin heiman að frá honum. Þá hafi hann verið uppnefndur af Miðflokksfólki.
Færsluna má sjá að neðan.

Formaður Miðflokksins vísar frásögnum á bug
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins tjáði sig strax um málið á Facebook í gær og hafnaði að sér hefði verið vísað út úr skólanum. Hann stendur við það í samtali við fréttastofu í dag.
„Þetta er ekki rétt. Mér var alla vega ekki vísað út. Ég talaði bara við nemendur. Ég fór þarna inn. Keypti mér samloku setti hana í samlokugrillið og þetta var bara besta stund kosningabaráttunnar til þessa. Ég hitti svona hundrað nemendur sem voru allir kátir og vildu ræða stjórnmál af mikilli skynsemi. Nemandi vildi svo fá áritun á verkfærið sitt, einhver fann tússpenna, aðrir komu með eitthvað sem þeir höfðu fengið og vildu láta skreyta. Það var engin illkvittni í þessu. Einu breytingarnar voru að gera myndarlega frambjóðendur enn myndarlegri. Það eru nokkur svona verk þarna úti sem kannski birtast á uppoðshúsum á næstu dögum,“ segir Sigmundur.
Mikið ber á milli frásagna skólastjóra, og aðstoðarskólastjóra VMA og Sigmundar. Hann telur ástæðuna vera að Sigríður Huld skólastjóri tilheyri öðrum flokki en Miðflokknum. Sigríður Huld var í 22. sæti Samfylkingarinnar á Akureyri í sveitarstjórnarkosningunum 2022.
„Er það ekki bara af því að skólatjórinn er virk í Samfylkingunni og sá þarna tækifæri til að búa til einhverja sögu. Ég tek ekki á neinn hátt undir þá sögu,“ segir hann.

Allir hafi verið kátir með skreytinguna
Aðspurður hvort honum finnst sæma þingmanni að skrifa á kosningavarning annarra flokka svarar Sigmundur:
„Þetta var eitthvað sem nemendur höfðu fengið og báðu mig um að skrifa á.“
Sigmundur var í þessu samhengi spurður að því hvort hann geri allt sem hann sé beðinn um.
„Ég reyni að þóknast fólki. Það var enginn illkvitni í þessu. Þetta var bara til þess að verða við óskum þessara ungmenna. Það voru allir kátir með það og ekkert út á það að setja,“ segir Sigmundur.
Aðspurður um hvort að hann telji að flokkarnir sem standa að umræddum kosningavarningi, Framsókn og Flokkur fólksins, séu kátir svarar hann.
Já ég gerði þá enn þá myndarlegri en þeir eru fyrir. Þá bað nemandi mig um að endurhanna húfu Flokks fólksins og setti hana svo upp og við fórum í sjómann.
Sigmundur kannast ekki við að nemandi hafi verið uppnefndur í heimsókn í skólann.
„Ég veit ekkert um þetta. Ég uppnefndi engan.“ segir hann.
Aðspurður hvort hann hafi heyrt eitthvað slíkt frá öðrum fulltrúum flokksins sem voru með í för svarar Sigmundur:
„Það finnst mér ólíklegt. En ég veit ekki hvað aðrir hafa rætt einhvers staðar annars staðar.“
„Takk VMA“
Sigmundur segist hafa fengið frábærar viðtökur í VMA.
„Ég myndi vilja koma því á framfæri við Verkmenntaskólann á Akureyri að þeir eru með frábæra nemendur. Það er alltaf gaman að fara í framhaldsskóla en ég veit ekki um neinn skóla sem er eins gaman að heimsækja og maður fær eins góðar viðtökur í. Þannig að takk VMA,“ segir hann.