San Marínó vann þá glæsilegan 3-1 útisigur á landsliði Liechtenstein. Þetta er fyrsti útisigurinn í sögu landsliðsins en San Marínó er númer 210 á styrkleikalista FIFA. Það er í síðasta sæti meðal allra landsliða heims.
Sigurinn skilar San Marínó sigri í riðlinum og um leið sæti í C-deildinni á kostnað Gíbraltar. San Marínó náði í sjö stig af tólf mögulegum í keppninni.
Liechtenstein vann aftur á móti ekki leik í riðlinum og endaði með aðeins tvö stig úr fjórum leikjum etir tvö jafntefli við Gíbraltar.
Liechtenstein komst reyndar í 1-0 í kvöld með marki Aron Sele á 40. minútu.
Lorenzo Lazzari jafnaði fyrir San Marínó á fyrstu mínútu seinni hálfleiksins og Nicola Nanni skoraði síðan úr vítaspyrnu á 66. mínútu.
Þriðja markið skoraði síðan Alessandro Golinucci á 76. mínútu og gulltryggði með því sigurinn.
Það er Moldóva sem fylgir San Marínó upp í C-deildina en Móldóvar unnu hinn riðilinn.
Malta og Gíbraltar fara í umspil um sæti í C-deild á móti liðum sem voru með bestan árangur af þeim sem enduðu í neðsta sæti í sínum riðli i C-deildinni.