Fótbolti

Haaland með þrennu og Norð­menn efstir

Smári Jökull Jónsson skrifar
Erling Haaland fékk boltann til eignar eftir sigurinn í dag.
Erling Haaland fékk boltann til eignar eftir sigurinn í dag. Vísir/Getty

Erling Haaland var á skotskónum þegar Norðmenn tryggðu sér efsta sætið í þriðja riðli C-deildar Þjóðadeildarinnar í dag.

Norðmenn voru jafnir Austurríki að stigum fyrir leiki dagsins. Norðmenn tóku á móti Kasakstan á heimavelli sínum í Osló og heimamenn voru búnir að gera út um leikinn í fyrri hálfleik. Þá hafði Haaland skorað tvö mörk og Alexander Sörloth bætt því þriðja við

Haaland fullkomnaði síðan þrennuna í síðari hálfleik áður en Antonia Nusa bætti fimmta markinu við og innsiglaði sigurinn. 

Klippa: Mörkin úr leik Noregs og Kasakstan

Á sama tíma gerðu Austurríkismenn og Slóvenía jafntefli í Vín og það dugði fyrir Norðmenn til að ná efsta sætinu.

Í Finnlandi unnu Grikkir 2-0 sigur á heimamönnum með mörkum frá Anastasious Bakasetas og Christos Tzolis í seinni hálfleik. Finnar falla því niður í C-deild en Grikkir fara í umspil um að sæti í A-deildinni.

Öll úrslit í Þjóðadeildinni:

B-deild

England - Írland 5-0

Finnland - Grikkland 0-2

Noregur - Kasakstan 5-0

Austurríki - Slóvenía 1-1

C-deild

Lettland - Armenía 1-2

Norður Makedónía - Færeyjar 1-0




Fleiri fréttir

Sjá meira


×