Fótbolti

Atlético Madríd stal sigrinum í París

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Leikmenn Atl. Madríd geta leyft sér að fagna eftir frækinn sigur.
Leikmenn Atl. Madríd geta leyft sér að fagna eftir frækinn sigur. EPA-EFE/MOHAMMED BADRA

Atlético Madríd tryggði sér frækinn sigur á París Saint-Germain í Meistaradeild Evrópu. Eftir að lenda undir komu gestirnir frá Madríd til baka og tryggðu sér stigin þrjú með síðustu spyrnu leiksins. 

Einn af stórleikjum kvöldsins fór fram í París þar sem Atlético Madríd sótti París Saint-Germain heim. Þar komust heimamenn yfir eftir mikinn klaufagang í vörn gestanna. Ousmane Dembélé renndi boltanum á hinn 18 ára gamla Warren Zaire-Emery sem vippaði boltanum snyrtilega yfir Jan Oblak í marki Atl. Madríd.

Warren Zaire-Emery kemur PSG yfir.EPA-EFE/MOHAMMED BADRA

Nahuel Molina jafnaði hins vegar metin fyrir gestina aðeins fjórum mínútum síðar og eftir að markið var skoðað af myndbandsdómara leiksins var staðfest að það stæði. Mörkin urðu ekki fleiri í fyrri hálfleik og staðan jöfn 1-1 þegar gengið var til búningsherbergja. 

Það stefndi allt í að liðin færu heim með eitt stig í pokahorninu en í blálokin gaf Antoine Griezmann á Angel Correa sem lék á varnarmann PSG og átti skot sem Gianluigi Donnarumma réð ekki við í marki PSG og gestirnir komnir yfir. Skömmu síðar var leikurinn flautaður af og lokatölur í París 1-2.

Griezmann stóð fyrir sínu.EPA-EFE/MOHAMMED BADRA

Í Þýskalandi var Benfica í heimsókn hjá Bayern München og fór það svo að heimamenn unnu 1-0 sigur þökk sé marki Jamal Musiala á 67. mínútu eftir sendingu frá Harry Kane. 

Leikmenn Bayern fagna.EPA-EFE/ANNA SZILAGYI

Önnur úrslit 

  • Shakhtar Donetsk 2-1 Young Boys
  • Feyenoord 1-3 Salzburg
  • Sparta Prag 1-2 Brest
  • Stuttgart 0-2 Atalanta

Stöðuna í Meistaradeild Evrópu má finna á vef UEFA, Knattspyrnusambands Evrópu,




Fleiri fréttir

Sjá meira


×