Innlent

Borgar­full­trúi skipar annað sætið í kjör­dæmi for­mannsins

Atli Ísleifsson skrifar
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir er borgarfulltrúi Flokks fólksins í Reykjavík.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir er borgarfulltrúi Flokks fólksins í Reykjavík. Vísir/Vilhelm

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, mun leiða lista flokksins í Reykjavík suður í komandi alþingiskosningum. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir sálfræðingur skipar 2. sæti listans, en hún hefur setið sem borgarfulltrúi flokksins frá árinu 2018 og var áður meðal annars formaður Barnaheilla.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Flokki fólksins. Þar segir að Rúnar Sigurjónsson vélvirki og formaður Fornbílaklúbbs Íslands skipi 3. sæti listans og í 4. sæti sé Helga Þórðardóttir kennari, sem hafi gegnt stöðu varaborgarfulltrúa flokksins frá árinu 2022.

Sjá má framboðslista Flokks fólksins í Reykjavíkurkjördæmi norður í heild sinni að neðan.  

  1. Inga Sæland, alþingismaður, Reykjavík
  2. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, borgarfulltrúi, Reykjavík
  3. Rúnar Sigurjónsson, vélvirki og framkvæmdastjóri, Reykjavík 
  4. Helga Þórðardóttir, kennari og varaborgarfulltrúi, Reykjavík
  5. Svavar Guðmundsson, sjávarútvegsfræðingur, Reykjavík
  6. Guðrún Ósk Jakobsdóttir, formaður fimleikadeildar Fylkis, Reykjavík
  7. Svanberg Hreinsson, framreiðslumaður, Mosfellsbæ
  8. Halldóra Gestsdóttir, hönnuður, Reykjavík 
  9. Birgir Jóhann Birgisson, tónlistamaður, Reykjavík 
  10. Valur Sigurðsson, rafvirki, Reykjavík
  11. Guðný Erla Jakobsdóttir, leikskólakennari og þjálfari, Hafnafirði 
  12. Ómar Örn Ómarsson, verkamaður, Reykjavík 
  13. Hjördís Björg Kristinsdóttir, sjúkraliði, Reykjavík
  14. Sigurjón Arnórsson, framkvæmdastjóri, Kópavogi 
  15. Þóra Bjarnveig Jónsdóttir, handverkskona, Reykjavík
  16. Kristján Arnar Helgason, eldri borgari, Reykjavík 
  17. Guðbergur Magnússon, ellilífeyrisþegi, Reykjavík
  18. Magano Katrina Shiimi, sjúkraliði, Mosfellsbæ 
  19. Óli Már Guðmundsson, listamaður, Reykjavík 
  20. Hilmar Guðmundsson, eldri borgari, Reykjavík 
  21. Þórarinn Kristinsson, eldri borgari, Reykjavík
  22. Sigríður Sæland Jónsdóttir, húsmóðir, Reykjavík

Tengdar fréttir

Fram­boðs­listi Flokks fólksins í Suður­kjör­dæmi birtur

Ásthildur Lóa Þórsdóttir alþingismaður og kennari, mun leiða lista Flokks fólksins í Suðurkjördæmi í komandi þingkosningum. Sigurður Helgi Pálmason safnvörður og þáttagerðarmaður skipar 2. sætið, Elín Fanndal félagsliði og varaþingmaður, skipar 3. sætið og Jónas Yngvi Ásgrímsson, stjórnarmaður hjá VR og miðstjórnarmaður ASÍ, það fjórða.

Lilja Rafney skipar annað sætið á lista Flokks fólksins

Lilja Rafney Magnúsdóttir, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, skipar annað sæti á lista Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. Eyjólfur Ármannsson þingmaður leiðir listann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×