Lífið

Björg­ólfur Thor selur 200 fer­metra glæsiíbúð við höfnina

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Í búðin er 198,9 fermetra að stærð  á fimmtu og efstu hæð í fjölbýlishúsi sem var byggt árið 2019.
Í búðin er 198,9 fermetra að stærð  á fimmtu og efstu hæð í fjölbýlishúsi sem var byggt árið 2019. Gunnar Sverrisson

Eignahlutfélag Björgólfs Thors Björgúlfssonar, Novathor F11 ehf, hefur sett glæsiíbúð við Austurhöfn í Reykjavík á sölu. Óskað er eftir tilboðum í eignina. Félagið festi kaup á eigninni árið 2022 og greiddi 310 milljónir.

Um er að ræða 198,9 fermetra íbúð á fimmtu og efstu hæð í fjölbýlishúsi sem var byggt árið 2019.

Í lýsingu eignarinnar kemur fram að mikill metnaður hafi verið lagður í hönnun hússins og ekkert hafi verið til sparað við byggingu þess. Þá opnast lyftan beint inn í íbúðina.

Dökkur viður og smekklegheit

Íbúðin er smekklega innréttuð og einkennist af miklum munaði. Formfögur húsgögn, listaverk og dökkur viður er í aðalhlutverki.

Stofa, eldhús og borðstofa flæða saman í eitt í opnu og björtu rými með lofthæðarháum gluggum og útsýni yfir höfnina. 

Allar innréttingar í íbúðinni eru sérsmíðaðar úr amerískri hnotu af ítalska handverkshúsinu Gili Creations. Kvarts borðplata er í eldhúsi og eldhúseyjan er klædd marmaraflísum. 

Tvennar svalir eru á íbúðinni og tvö svefnherbergi, bæði með eigin baðherbergi.

Nánar á fasteignavef Vísis.

Gunnar Sverrisson
Gunnar Sverrisson
Gunnar Sverrisson
Gunnar Sverrisson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×