Fótbolti

Læri­sveinar Heimis með sinn fyrsta sigur

Siggeir Ævarsson skrifar
Heimir Hallmgrímsson hafði ríka ástæðu til að brosa í kvöld
Heimir Hallmgrímsson hafði ríka ástæðu til að brosa í kvöld Vísir/Getty

Fjölmargir leikir fóru fram í Þjóðadeildinni í kvöld. Írland fagnaði sínum fyrsta sigri í deildinni þegar liðið lagði Finnland en þetta var fyrsti sigur liðsins undir stjórn Heimis Hallgrímssonar í þremur tilraunum.

Finnar komust yfir snemma í fyrri hálfleik en Robbie Brady var hetja Írlands þegar hann tryggði 1-2 sigur með marki á 88. mínútu.

Í A-deild vann Frakkland öruggan 1-4 sigur á Ísrael og Ítalía og Belgía gerðu 2-2 jafntefli.

Í B-deild lögðu Grikkir Englendinga 1-2 af velli, Írar unnu Finna eins og áður sagði, Austurríki valtaði yfir Kasakstan 4-0 og Noregur vann þægilegan 3-0 sigur á Slóveníu þar sem Erling Håland skoraði tvö mörk.

N-Makedónía vann 0-3 útisigur á Lettlandi í C-deild og frændur okkar frá Færeyjum gerðu 2-2 jafntefli við Armeníu.

Þá fóru tveir leikir frá í D-deild. Moldóva lagði Andorra 2-0 og í örþjóðaleik Gíbraltar og San Marínó vann Gíbraltar frækinn 1-0 sigur en þetta var fyrsti sigur liðsins í keppnisleik síðan í október 2020.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×