Bæta við upphæð viðskiptavina til styrktar Bleiku slaufunni Hagkaup 7. október 2024 15:30 Lilja Björg Gísladóttir sérfræðingur markaðsmála hjá Hagkaup, Árni Reynir Alfreðsson forstöðumaður fjáröflunar og markaðsmála hjá Krabbameinsfélaginu og Rakel Ósk Hreinsdóttir vörustjóri snyrtivöru og fatnaðar hjá Hagkaup. Bleika slaufan er árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Hagkaup er stoltur söluaðili Bleiku slaufunnar og ætlar að styrkja átakið með því að bjóða okkar viðskiptavinum að leggja söfnuninni lið í verslunum okkar 2.-13. október.
Viðskiptavinum býðst að bæta 500 krónum við innkaup sín sem renna til söfnunarinnar og mun Hagkaup bæta við þá upphæð. Hönnuður Bleiku slaufunnar í ár er Sigríður Soffía Níelsdóttir og er slaufan í ár þrjú eldblóm sem mynda skínandi blómakrans sem lítur út fyrir að hafa verið dýft ofan í fljótandi málm. Skilaboðin með slaufunni eru einstaklega falleg: „Allt tekur enda - ekkert er varanlegt“. Augnablikið þegar blómin springa út er ákveðinn hápunktur en mörgu þarf að huga að til að plantan blómstri. Að jafna sig eftir veikindi er svipað. Því meira sem við hlúum að fólkinu okkar eftir meðferð - því líklegra er að það blómstri aftur. Aðstandendur, ókunnugir sem bjóða góðan daginn, þeir sem að styðja við, peppa og segja þér að gefast ekki upp og trúa á þig hafa meiri áhrif en margan grunar. Viðbótarstyrkur frá Hagkaup Hagkaup hefur síðustu ár tekið virkan þátt í átakinu með því að selja Bleiku Slaufuna í verslunum sínum auk þess sem viðskiptavinum gefst kostur á að bæta 500 kr. styrk til Bleiku slaufunnar við innkaup sín á sjálfsafgreiðslukössum en Hagkaup bætir svo við þá upphæð. „Fjárhagslegur stuðningur einstaklinga og fyrirtækja við átak á borð við Bleiku slaufuna er ómetanlegt framlag í baráttunni við krabbamein og undirstaða þess að félagið geti áfram sinnt þessum mikilvægu verkefnum. Samstarf Krabbameinsfélagins og Hagkaups hefur verið afar ánægjulegt og árangursríkt og viljum við þakka Hagkaup fyrir sinn mikilvæga stuðning til félagsins og öllum þeim sem nýta sér þessa frábæru styrktarleið af alhug fyrir stuðninginn. segir Árni Reynir Alfredsson forstöðumaður fjáröflunar og markaðsmála hjá Krabbameinsfélaginu. Málefni sem snertir okkur öll ,,Okkur í Hagkaup finnst það bæði sjálfsagt og gott að styrkja átakið með þeim hætti sem við höfum gert síðustu ár og erum mjög þakklát okkar viðskiptavinum fyrir þeirra framlag til verkefnisins. Við höfum því miður flest, ef ekki öll, einhver tengsl við krabbamein með einhverjum hætti eða í gegnum einhvern sem við þekkjum. Við erum sannarlega þakklát Krabbameinsfélaginu fyrir það einstaka og mikilvæga starf sem þau vinna og erum virkilega stolt af því að geta tekið þátt í þessu átaki og hvetjum að sjálfsögðu alla til þess að gera það," segir Lilja Gísladóttir sérfræðingur markaðsmála hjá Hagkaup. Hagkaup selur Bleiku slaufuna í verslunum sínum og í vefverslun og hefur salan gengið vonum framar síðustu ár og seldist til að mynda upp á met tíma á síðasta ári. ,,Við viljum leggja þessu verðuga málefni lið á þann hátt sem við getum og höfum síðustu ár selt upp allar þær slaufur sem við höfum fengið til þess að selja. Við vöndum okkur við að gefa slaufunum gott rými og sýnileika í verslunum okkar og salan á Bleiku slaufunni hefur aukist í Hagkaup ár frá ári svo við eigum ekki von á neinu öðru en að það verði með sama móti í ár," segir Rakel Ósk Hreinsdóttir vörustjóri snyrtivöru og fatnaðar hjá Hagkaup.
Krabbamein Skimun fyrir krabbameini Mest lesið Sex ára þegar hann var fyrst frelsissviptur Lífið Háleit markmið Katrínar: Sparar í mat og greiðir 10 milljónir inn á húsnæðislánið Lífið Pamela Bach-Hasselhof látin Lífið Svona er umhorfs hjá Höllu á Bessastöðum Lífið Fimm heillandi heimili í höfuðborginni Lífið „Fyrir mér snýst þetta ekki bara um að sækjast eftir kórónu“ Lífið Ungir Framsóknarmenn safna fyrir neyðarsjóð Ragnars Þórs Lífið Var mjög heit fyrir lýtalækninum Lífið Segir gott að elska Ara Lífið Fáðu að vita strax hvort þú hafir efni á draumaeigninni Lífið samstarf Fleiri fréttir Fáðu að vita strax hvort þú hafir efni á draumaeigninni Merkja uppgjöf í baráttunni og blása til sóknar Gæðadýnur á frábæru verði! Heilsan væri ekki sú sama án mjólkursýrugerlanna frá Probi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Hlýleg stemming og einstök matarupplifun Úrval Útsýn færir landsmönnum sól og gleði í 70 ár Lada Sport okkar tíma Skráning hafin í Íslandsmeistaramótið í Ólsen ólsen Frumsýning nálgast og Minecraft og Oreo bregða á leik Eldabuskan græjar þriðju vaktina Wok to Walk opnar þrjá staði þar sem áður var Wok On Konudagsleikur - taktu þátt í skemmtilegri hefð Sýning sem breytir upplifun okkar á heiminum „Við ætlum okkur að finna fyndnasta hlátur Íslands“ Wolt og Blush með ástföngnum í liði á Valentínusardaginn „Við höfum það fyrir sið að faðmast í að lágmarki sjö sekúndur á hverjum morgni“ Almenningur eigi rétt á frjálsri för um óræktað land Óþægindi frá álagsmeiðslum minnkuð til muna með tilkomu Nutrilenk Stefnan sett á Ólympíuleikana 2028 „Í þessu jarðneska lífsbraski er G-vítamínið bráðnauðsynlegt“ Finnur þú fyrir uppþembu eða óþægindum eftir mat? „Mögulega besti tengiltvinnbíl sem framleiddur hefur verið“ Gerðu frábær kaup á húsgagnadögum JYSK NIVEA kynnir fyrstu hreinsivöruna með 5% serum Sjá meira