KR sækir tvo frá Fjölni Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 4. október 2024 20:03 Júlíus Mar mun spila í svart-hvítu á næstu leiktíð. KR KR hefur samið við tvo leikmenn Lengjudeildarliðs Fjölnis um að leika með næstu árin. Um er að ræða markvörðinn Halldór Snæ Georgsson og miðvörðinn Júlíus Mar Júlíusson.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, núverandi þjálfari KR, var duglegur að sækja leikmenn þegar hann sinnti starfi yfirmanns knattspyrnudeildar KR og sótti nokkra leikmenn í sumarglugganum. Hann er hvergi hættur og nú hefur KR tilkynnt komu þriggja leikmanna frá Fjölni á aðeins tveimur dögum. Hvað varðar tvíeykið sem samdi í þá er markvörðurinn Halldór Snær fæddur 2004 og skrifar undir fjögurra ára samning við KR. Hann hefur spilað 40 leiki fyrir Fjölni í Lengjudeildinni og átta leiki fyrir U-19 ára landslið Íslands. Halldór Snær var lykilmaður Fjölnis á nýafstöðnu tímabili þar sem liðið féll úr leik í umspilinu um sæti í Bestu deildinni. Á lokahófi félagsins var hann valinn leikmaður ársins hjá félaginu. Halldór Snær hefur spilað með Fjölni og tekur nú skrefið yfir í KR.KR Miðvörðurinn Júlíus Mar er einnig fæddur 2004 og skrifar sömuleiðis undir fjögurra ára samning. Hann er „kraftmikill og leikinn“ hafsent sem hefur verið lykilmaður Fjölnis undanfarin ár. Júlíus Mar á að baki 83 leiki fyrir Fjölni og þrjá með U-19 ára landsliði Íslands. Hann var valinn í lið ársins í Lengjudeildinni hjá Fótbolti.net. KR er í 9. sæti Bestu deildar karla með 25 stig, fjórum frá fallsæti, þegar þrjár umferðir eru eftir af tímabilinu.
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild karla KR Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann Sjá meira