Lífið

Eminem verður afi

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Eminem er af mörgum talinn einn færasti rappari sögunnar.
Eminem er af mörgum talinn einn færasti rappari sögunnar. Kevin Winter/Getty

Bandaríski rapparinn Eminem er að verða afi í byrjun næsta árs. Hann tilkynnti gleðifréttirnar í nýju tónlistarmyndbandi við lagið Temporary, sem hann vann með söngkonunni Skylar Grey.

Þetta kemur fram kemur á vef CNN. 

Dóttir rapparans, Hailie Jade, og eiginmaður hennar, Evan McClintock, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Hjónin byrjuðu saman árið 2016 og giftu sig í maí á þessu ári.

Í myndbandinu má sjá myndbrot úr lífi þeirra feðgina í gegnum tíðina, ásamt myndum úr brúðkaupi Hailie. Í lokin má svo sjá þegar Jade færir föður sínum bláan bol merktur afi aftan á ásamt sónarmynd.

Lagið tileinkaði Eminem dóttur sinni; „Hailie Jade, ég samdi þetta lag til að hjálpa þér að takast á við lífið þegar ég verð farinn.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×