Andri Guðjohnsen lagði upp í tapi gegn Chelsea 3. október 2024 21:00 KAA Gent v FC Verbroedering Dender EH - Jupiler Pro League GENT, BELGIUM - AUGUST 4: Andri Gudjohnsen (9) of AA Gent pictured during the Jupiler Pro League season 2024 - 2025 matchday 2 game between AA Gent and FCV Dender on August 4 , 2024 in Gent, Belgium. (Photo by Isosport/MB Media/Getty Images) Andri Lucas Guðjohnsen lagði upp mark Gent í 4-2 tapi gegn Chelsea á Stamford Bridge í fyrstu umferð Sambandsdeildarinnar. Heimamenn Chelsea voru við völd frá upphafi og tóku forystuna snemma. Renato Veiga skoraði á 12. mínútu eftir undirbúning Mykhailo Mudryk. Pedro Neto tvöfaldaði svo forystuna snemma í seinni hálfleik. Þá var komið að Gent, sem minnkaði muninn á 50. mínútu. Andri Lucas Guðjohnsen gaf stoðsendinguna, flott fyrirgjöf frá hægri kantinum sem rataði á Tsuyoshi Watanabe sem skallaði í markið. Andri var tekinn af velli á 64. mínútu fyrir Max Dean. Allar vonir um endurkomu slökknuðu síðan skömmu síðar þegar Chelsea bætti tveimur mörkum við með skömmu millibili. Christopher Nkunku og Kiernan Dewsbury-Hall komust þar á blað. Omri Gandelman minnkaði muninn fyrir Gent á lokamínútum leiksins. 4-2 lokaniðurstaðan á Stamford Bridge. Sambandsdeild Evrópu