Ótrúverðugar skýringar í nauðgunarmáli Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. október 2024 15:29 Dómur var kveðinn upp í Landsrétti í dag. Vísir/Vilhelm Arnar Björn Gíslason, 26 ára karlmaður, hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun. Arnar Björn var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur í nóvember í fyrra og var refsingin staðfest í Landsrétti í dag.
Arnar Björn var dæmdur fyrir að hafa að morgni sunnudagsins 20. febrúar árið 2022 brotið á konu á heimili hennar í Reykjavík. Í ákæru kom fram að hann hefði án samþykkis konunnar og með ólögmætri nauðung haft samræði og önnur kynferðismök við konuna með því að stinga fingrum ítrekað í leggöng hennar, leggjast ofan á hana, halda henni niðri og hafa við hana samræði. Þá hefði hann klipið hana víðs vegar um líkamann og skeytt engu þó konan hefði ítrekað sagt honum að hætta, ýtt hönd hans í burtu og öskrað af sársauka. Konan hlaut roða og marbletti á brjóstum, bringu, ofanverðum upphandleggjum, hægra utanverðu læri og sentimetra langan skurð við leggangaop. Kynntust á samfélagsmiðlum viku fyrr Málsatvikum er lýst í dómi héraðsdóms frá í fyrra. Þar kemur fram að fólkið hafi kynnst á samskiptaforriti 10. febrúar 2022, náð vel saman og spjallað reglulega þar til þau hittust fyrst föstudaginn 18. febrúar. Þá nótt gistu þau saman án þess að nokkuð kynferðislegt hefði gerst á milli þeirra. Kvöldið eftir hittust þau aftur. Konan lýsti því að hafa sótt Arnar Björn eftir miðnætti en hann hefði verið drukkinn og ekki getað náð sér í leigubíl. Í rúminu hafi Arnar Björn reynt að fara inn á hana en hún ýtt honum frá. Hún hefði verið í samfestingi með stutt- og nærbuxum innan undir. Hann hefði þó komið vinstri hendi inn undir buxnaskálm og stungið fingrum í leggöng hennar. Það hefði verið mjög sárt. Hún hefði ítrekað reynt að ýta honum í burtu. Hann hefði klætt sig úr nærbuxunum og hún ítrekað að þau væru ekki að fara að sofa saman. Hann hefði engu skeytt um það og haft samræði við hana, hratt og harkalega, og klórað hana svo hún öskraði. Beiðnir hennar um að hætta hefðu verið hundsaðar þar til hann hætti loks, lagðist við hliðina á henni og lét eins og ekkert hefði í skorist. Hafi gert lítið úr henni Líklega hefðu tvær til þrjár klukkustundir liðið frá því þau komu heim til hennar þar til þau fóru að sofa. Hann hefði klipið hana og slegið í eyrað þar sem hún var með tvö göt svo blæddi úr öðru þeirra. Hefði það gerst í einu af mörgum tilvikum þegar hann hefði verið að gera lítið úr henni. Kvaðst hún hafa beðið hann að biðjast afsökunar en hann þá gert lítið úr henni með því að apa allt eftir henni með breyttri rödd. Hann hefði síðan farið í símann og hún farið að sofa þegar klukkan var að verða fimm. Hafi hún vonað að hann yrði farinn þegar hún vaknaði daginn eftir og svo reyndist vera. Í framhaldinu hefði hún reynt að ná í Arnar Björn og leitast eftir afsökunarbeiðni en enga fengið. Loks hefði hún sagt honum að hún væri á leið á Landspítalann til að leita sér aðstoðar. Hún hefði verið með yfir tuttugu marbletti á líkamanum eftir hann. Hún upplifði líkamlegan sársauka í leggöngum og væri enn þegar hún pissaði. Arnar Björn neitaði því að samræðið hefði verið gegn vilja konunnar. Þau hefðu haft samræði líka kvöldið á undan. Þá hefðu tilraunir hans mánuðum síðar til að biðjast afsökunar aðeins snúið að því að afsaka hve seint hann svaraði henni. Aðspurður hvort konan hefði veitt samþykki svaraði hann því til að hún hefði aldrei sagt nei eða að hún vildi þetta ekki. Þá lýsti hann kynferðislegu orðalagi konunnar sem hefði þannig sýnt kynferðismökum áhuga. Væri ljóst að hann væri að þvinga til kynmaka Héraðsdómur Reykjavíkur var nokkuð afdráttarlaus í niðurstöðu sinni og sagði framburð Arnars Björns hafa verið á reiki um atvik og sumar skýringar mjög ótrúverðugar. Af lýsingum hans á atvikum í kjölfar brotsins og skýringum megi ráða að honum hafi strax í upphafi verið ljóst að konan væri að saka hann um alvarlegea háttsemi. Framburður konunnar hefði verið stöðugur í gegnum allt málið og trúverðugur um það sem máli skipti. Þá fái hann stoð í skýrslu á Neyðarmóttöku og vottorði og vætti læknis og hjúkrunarfræðings. Telur dómurinn að Arnari Birni hafi ekki getað verið annað ljóst en að með háttsemi sinni væri hann að þvinga konuna til kynmaka og beita hana ofbeldi. Var hann dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í héraði og var sá dómur staðfestur í Landsrétti í dag. Þá var hann dæmdur til að greiða konunni 1,8 milljónir króna í miskabætur.
Kynferðisofbeldi Dómsmál Mest lesið Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt Innlent „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Innlent Níu drepnir í drónaárás á rútu Erlent Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Erlent Hafa náð stjórn á sinueldi við Apavatn Innlent Svalt þokuloft ekki langt undan Innlent Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Innlent Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Erlent Fleiri fréttir Hafa náð stjórn á sinueldi við Apavatn Hryðjuverkamálið gæti haft verulega þýðingu Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Róttækar breytingar á byggingareftirliti og í beinni frá Basel Blöndulón fyllist sögulega snemma og staðan góð í lónum Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Svalt þokuloft ekki langt undan Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Björgunarmiðstöð byggð á Flúðum Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust Hefur áhyggjur af öryggi skólabarna í Laugardal Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Umferðarljós við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar óvirk Óheillaskref að áfengi sé selt á vellinum Mikið viðbragð Gæslunnar vegna veikinda langt úti á hafi Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Bein útsending: Sterkari saman - Þjóðarsjúkrahús í 25 ár Afstaða fær 600 þúsund í verðlaun frá Reykjavíkurborg Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Sakar RÚV um óvandaðan fréttaflutning um fjármál borgarinnar Rafmagnslaust á Granda Nítján í haldi vegna fíkniefnainnflutnings um Keflavíkurflugvöll Mál Margeirs til Landsréttar Sjá meira