Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sindri Sverrisson skrifar 27. september 2024 10:10 Camille Herron er í hópi þekktustu ofurhlaupara heims. Ein þekktasta ofurhlaupakona heims og eiginmaður hennar hafa stundað það að skreyta Wikipedia-síðu hennar og jafnframt breytt Wikipedia-síðum hjá öðrum hlaupurum til að láta þá líta verr út.
Canadian Running Magazine ljóstraði þessu upp í vikunni. Um er að ræða bandarísku hlaupakonuna Camille Herron, sem á 12 heimsmet í ofurhlaupum, og eiginmann hennar og þjálfara, Conor Holt. Þau hafa, samkvæmt grein CRM, meðal annars breytt Wikipedia-síðum þeirra Kilian Jornet og Courtney Dauwalter með því að taka út línur á borð við „Af mörgum talin meðal bestu utanvegahlaupara heims“. Á sama tíma bættu þau ítrekað við Wikipedia-síðu Herron og sögðu hana einn stórkostlegasta utanvegahlaupara sögunnar. Bönnuð frá Wikipedia en héldu áfram Hjónin hafa stofnað tvo aðganga að Wikipedia til að breyta texta í þessari internetalfræðiorðabók, sem ljóst er að ekki er alltaf hægt að reiða sig á. Camille Herron hefur sett fjölmörg met á sínum hlaupaferli. Fyrst var „Temporun73“ notaður, frá árinu 2017, en aðeins nokkrum klukkutímum eftir að sá notandi var bannaður þá stofnuðu þau nýjan, „Rundbowie“ og héldu áfram með sama hætti. Alls hafa 300 breytingar verið gerðar af þessum notendum, þar af meira en helmingurinn á síðu Herron. Jákvæðu efni hefur hins vegar verið eytt af síðum Jornet og Dauwalter, 2018 Boston-maraþonmeistarans Des Linden og grísku ofurhlaupagoðsagnarinnar Yiannis Kouros. Þá var tilvísunum í met hinnar dönsku Stine Rex, á upplýsingasíðuni um ofurmaraþon, breytt. Eiginmaðurinn segist bera ábyrgðina Hægt var að rekja notendaaðgangana og sjá að tölvupóstfang Herron hafði verið notað, og IP-tala mannsins hennar. Eiginmaðurinn, Conor Holt, hefur í kjölfar fréttar CRM sent fjölmiðlum yfirlýsingu og fullyrt að hann beri alla ábyrgð. Hann hafi ítrekað þurft að setja inn upplýsingar á síðu Herron vegna þess að „nettröll“ hefði tekið þær út. Þá hafi það verið hann sem lokaði öllum samfélagsmiðlum Herron eftir að fréttin fór í loftið, til að bregðast við netníði. Gerði enga tilraun til að svara ásökununum Þá segist Holt aldrei hafa fengið tækifæri til að svara ásökununum áður en greinin var birt. Blaðamaður CRM segir það alrangt og vísar í tölvupósta og skilaboð á samfélagsmiðlum. Ekkert svar hafi borist en: „Við fengum hins vegar svar 90 mínútum eftir að greinin fór í loftið á mánudaginn. Þá bað hún [Herron] okkur um að fjarlægja greinina og sagði að hún væri algjört hneyksli. Hún spurði hvernig við gætum gert henni þetta rétt fyrir stóra hlaupið í Grikklandi [sem fram fer um helgina]. Hins vegar gerði hún enga tilraun til að svara neinu af því sem fram kemur í greininni,“ sagði Marley Dickinson hjá Canadian Running Magazine. Forseti GOMU: Einbeitt í að valda sundrung og andúð Íþróttavöruframleiðandinn Lululemon tilkynnti í gær að samstarfi við Herron hefði verið slitið. Trishul Cherns, forseti GOMU sem er alþjóðasamband ofurhlaupara, kveðst í áfalli yfir málinu. „Á 46 árum í ofurhlaupum hef ég aldrei séð neinn eins hæfileikaríkan og Camille, sem er svo einbeitt í því að skapa sundrung og andúð í ofurhlaupaheiminum. Því miður er þessi Wikipedia-saga hluti af stærri sögu af svona afskiptum. Þetta par hefur ítrekað reynt að trufla annað íþróttafólk, orðspor þess, hlaup og frammistöðu, með vísun í frjálsíþróttareglur sem gilda ekki í ofurhlaupum. Mér bauð við gagnrýni Camille sem beindist að íþróttafólki sem ögraði „hennar“ metum, og viðleitni hennar til að gera lítið úr þeim. Þessi óíþróttamannslega hegðun er bara einelti og illgirni sem á sér engan samastað í ofurhlaupsamfélaginu,“ sagði Cherns.
Hlaup Mest lesið Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Enski boltinn Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Enski boltinn Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Enski boltinn Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Fótbolti Fleiri fréttir „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Dagskráin í dag: Toppslagur í Bestu deildinni Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Keppti langt fram á nótt og tapaði fimmtánda leiknum í röð Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Einn sá besti snýr aftur Sjá meira