Virkjum lýðræðið Jórdís Skúladóttir skrifar 24. september 2024 17:00 Við virðumst öll deila áhyggjum af vaxandi vanlíðan og ofbeldi í samfélaginu en um ástæðurnar eru skiptar skoðanir. Ég hef þá skoðun að aukin einstaklingshyggja í allt of hröðu og neysludrifnu samfélagi sé stór þáttur í þeirri stöðu sem við erum í. Einstaklingshyggjan fer afar illa með lýðræðinu, hagur og vilji heildarinnar verður undir. Við sjáum afleiðingar þess alls staðar í samfélaginu. Það verður sí erfiðara að manna félagsstörf nema ávinningur einstaklings sé tryggður. Gott dæmi um þetta er þróunin í íþróttastarfi barna. Allt er mælt í arðsemi og hraða til að ná sem bestum árangri og á þessum forsendum verður samþjöppun valds og fjármagns meira áberandi. Samfélagsmiðlar eru stór þáttur í lífi okkar í dag og þar sjást glöggt þess merki að neysluhyggjan nær inn á öll svið samfélagsins, til allra aldurshópa, ekki síst barna, og litar hugmyndir okkar um raunveruleikann og eðlilegt gildismat. En samfélagsmiðlar bera ekki ábyrgðina á þessu, það gerir markviss stefna sem felst í því að frelsi og réttur einstaklingsins sé öllu æðra. Þegar við horfum til landsbyggðarinnar hefur sameiningarmýtan verið helsti drifkrafturinn undanfarin ár. Í henni felst að það sé svo miklu hagkvæmara að reka stórar einingar en smáar. Víða hefur þetta hins vegar skilað miklu flóknari og stærri yfirbyggingu, lakari þjónustu og sveitarfélögin virðast síst standa betur. Hver er þá lausnin? Svarið við því er svo út frá sömu hugmyndafræði að það þurfi að auka atvinnu, fjölga fólki og draga inn meira fjármagn. Fjármagn virðist svo aðeins hægt að nálgast ef að við fórnum einhverju á móti, hvort sem það er náttúran eða mannlífið. Íbúunum er gefið í skyn að fyrr munum við ekki finna hamingjuna. Svo hlaupum við öll örlítið hraðar, kaupum meira, drögum úr mannlegum samskiptum og bíðum og bíðum eftir uppskeru. Þegar við hugsum hlutina einungis út frá arðsemi frekar en lýðheilsu og mannlegri velsæld verður alltaf lengra og lengra á milli ákvarðanatöku í málefnum fólks og þeirra sem þurfa að lifa eftir þeim ákvörðunum. Íbúalýðræði hefur alltaf verið mér hugleikið og tel ég fullkomlega eðlilegt að íbúar samfélaga hafi mikið um það að segja hvernig þeirra nærsamfélög byggjast upp. Þannig geti íbúar kallað eftir eða hafnað ákveðinni atvinnustarfsemi eða ákveðinni uppbyggingu. Þannig er virkt lýðræði forsenda öflugra og réttlátra samfélaga. Lýðræði er upphaf og endir alls og ef við vegum að því á einhvern hátt mun það alltaf leiða til verri stöðu fyrir okkur öll. Í stefnu VG segir meðal annars „Kjölfesta Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs er þátttaka almennra félaga hennar um land allt, í starfi, stefnumótun og ákvörðunum. Starfið einkennist af opnum samræðum í raunheimum og netheimum þar sem félagar koma saman, móta hugmyndir, leysa úr álitamálum og koma stefnu hreyfingarinnar á framfæri og í framkvæmd.“ Þetta þykja mér góð orð og mikilvæg og í anda þeirra vil ég starfa hljóti ég brautargengi sem varaformaður hreyfingarinnar. Mér hefur þótt lýðræði í íslensku samfélagi hafa dalað hvort heldur í stjórnmálum eða á öðrum vettvangi og sú þróun nær inn á öll svið. Við verðum öll aðeins lélegri í lýðræðinu. Ég hvet okkur öll til að staldra við, huga að lýðræðinu í okkar samfélagi í stóru og smáu samhengi hlutanna. Mætum á kjörstað, tökum þátt í félagsstarfi, hugum að hag heildarinnar og stöndum með lýðræðinu. Höfundur er þingmaður VG og í framboði til varaformanns hreyfingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Jódís Skúladóttir Vinstri græn Mest lesið Ísland: Landið sem unga fólkið flykkist til Kristófer Már Maronsson Skoðun Hver er ábyrgð Icelandair? Sævar Þór Jónsson Skoðun Þeir borga sem nota! Tómas Kristjánsson Skoðun Ýmislegt um rafmagnsbíla og reiðhjól Valur Elli Valsson Skoðun Ísland: Landið sem unga fólkið flýr Einar Jóhannes Guðnason Skoðun Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu - Samanburður við nágrannalöndin Þórarinn Hjaltason Skoðun ChatGPT um íslenska húsnæðismarkaðinn Yngvi Ómar Sighvatsson Skoðun Eru sumir íslenskir stjórnmálamenn að bergmála áróður Kremlar? Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Hvað lærum við af hinum sem er ósammála? Samtal um loftslagsmál Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Ráðstefna um þjóðarátak í húsnæðismálum Ámundi Loftsson Skoðun Skoðun Skoðun Virkjum lýðræðið Jórdís Skúladóttir skrifar Skoðun Ráðstefna um þjóðarátak í húsnæðismálum Ámundi Loftsson skrifar Skoðun Íslenski skorturinn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Ofhugsanir: orsök & afleiðing Sara Pálsdóttir skrifar Skoðun Ísland: Landið sem unga fólkið flykkist til Kristófer Már Maronsson skrifar Skoðun Öldrunarþjónustan – tækifæri og áskoranir Sandra B. Franks skrifar Skoðun ChatGPT um íslenska húsnæðismarkaðinn Yngvi Ómar Sighvatsson skrifar Skoðun Milljónir úr launaumslögum til vopnakaupa Ástþór Magnússon skrifar Skoðun Í orði en ekki á borði - stuðningur Íslands við Úkraínu Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Hvað lærum við af hinum sem er ósammála? Samtal um loftslagsmál Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Fatlað fólk á Íslandi Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Tölum um það sem er í boði fyrir ungt fólk Bjarney Rún Haraldsdóttir,Eva Rós Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hver er ábyrgð Icelandair? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Gervigreindin og atvinnulífið Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Eiga íbúðir að vera heimili fólks eða fjárfestingarkostur og munaðarvara? - Seinni hluti Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Það sem við vökvum, það vex: Taktu stjórn á algóritma samfélagsmiðla og huga þínum Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu - Samanburður við nágrannalöndin Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Eins og þú kallar í skóginn….. – við þurfum að þora að ræða viðkvæmu málin Björn Bjarki Þorsteinsson,Unnur Valborg Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Hinn stóri pakki ósýnilegrar reynslu Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun GOGG, GOGG, GOGG og aftur GOGG Guðrún Njálsdóttir skrifar Skoðun Eru sumir íslenskir stjórnmálamenn að bergmála áróður Kremlar? Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Beðið eftir orkumálaráðherra Eggert Valur Guðmundsson,Gunnar Aron Ólason skrifar Skoðun Ísland: Landið sem unga fólkið flýr Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun „Við verðum að fylgja lögum“ Hópur listafólks skrifar Skoðun Ég er ekki alki Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Eiga íbúðir að vera heimili fólks eða fjárfestingarkostur og munaðarvara? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun „Þetta reddast“ og heilsan að húfi? Alexander Aron Guðjónsson,Ásta Logadóttir skrifar Skoðun Nauðsyn námsgagna Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvort er ánægjulegra, kynlíf eða verslunarleiðangur? Gró Einarsdóttir skrifar Skoðun Fást engin svör Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu - Samanburður við nágrannalöndin Þórarinn Hjaltason Skoðun
Hvað lærum við af hinum sem er ósammála? Samtal um loftslagsmál Haukur Logi Jóhannsson Skoðun
Skoðun Hvað lærum við af hinum sem er ósammála? Samtal um loftslagsmál Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Skoðun Tölum um það sem er í boði fyrir ungt fólk Bjarney Rún Haraldsdóttir,Eva Rós Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Eiga íbúðir að vera heimili fólks eða fjárfestingarkostur og munaðarvara? - Seinni hluti Magnea Marinósdóttir skrifar
Skoðun Það sem við vökvum, það vex: Taktu stjórn á algóritma samfélagsmiðla og huga þínum Steindór Þórarinsson skrifar
Skoðun Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu - Samanburður við nágrannalöndin Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Eins og þú kallar í skóginn….. – við þurfum að þora að ræða viðkvæmu málin Björn Bjarki Þorsteinsson,Unnur Valborg Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Eru sumir íslenskir stjórnmálamenn að bergmála áróður Kremlar? Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Eiga íbúðir að vera heimili fólks eða fjárfestingarkostur og munaðarvara? Magnea Marinósdóttir skrifar
Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu - Samanburður við nágrannalöndin Þórarinn Hjaltason Skoðun
Hvað lærum við af hinum sem er ósammála? Samtal um loftslagsmál Haukur Logi Jóhannsson Skoðun