Innlent

Eigin­maður ís­lenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúð­kaupið

Árni Sæberg skrifar
Starfsmenn íslenska sendiráðsins í Kampala hafa meðal annarra reynt að hafa uppi á manninum.
Starfsmenn íslenska sendiráðsins í Kampala hafa meðal annarra reynt að hafa uppi á manninum. Stjórnarráðið

Íslensk kona á sextugsaldri hefur stefnt úgönskum eiginmanni sínum til lögskilnaðar en hún hefur hvorki heyrt frá honum né séð frá árinu 2007, skömmu eftir að þau gengu í hjónaband.

Þetta kemur fram í auglýsingu í Lögbirtingablaðinu. Þar segir að lögmaður hafi tilkynnt Héraðsdómi Reykjavíkur að hún þyrfti að höfða mál fyrir dómstólnum á hendur manninum vegna kröfu hennar um lögskilnað. Maðurinn sé fæddur árið 1979 og aðsetur hans sé óþekkt sem og lögheimili.

Þá sé málskostnaðar krafist að mati dómsins eða samkvæmt málskostnaðarreikningi, að viðbættum virðisaukaskatti, sem lagður verði fram við aðalmeðferð málsins, komi til hennar, en þess sé krafist að málskostnaður verði tildæmdur konunni eins og málið væri ekki gjafsóknarmál.

Með lögheimili í Úganda árið 2008

Málsatvikum er svo lýst að hjónin hafi gengið í hjúskap árið 2007 en þau hefðu kynnst nokkrum mánuðum fyrr. Stuttu eftir að þau voru gefin saman hafi maðurinn horfið og konan hafi eftir það hvorki heyrt frá honum né séð. 

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá hafi maðurinn verið skráður með lögheimili í Úganda 8. ágúst 2008 en vinnsludagur skráningar hafi verið 7. október 2008. Hjónin eigi engin börn saman og fjárhagur þeirra hafi aldrei verið sameiginlegur þrátt fyrir hjónabandið. Konan geri því engar fjárkröfur á hendur manninum.

Hefur reynt að hafa uppi á manninum með aðstoð sendiráðsins í Kampala

Fyrir liggi að árangurlaust hefur verið fyrir konuna að leita skilnaðar hjá sýslumanni en maðurinn hafi ekki haft lögheimili hér á landi síðan 2008. Gerðar hafi verið tilraunir til þess að hafa upp á stefnda, þar með talið með aðstoð Þjóðskrár, sendiráðs Íslands í Kampala, Úganda, sem og utanríkisráðuneytisins, en allt hafi komið fyrir ekki. 

Ráðuneytið muni hafa milligöngu um birtingu réttarstefnunnar, þar sem Úganda sé ekki aðili að Haag-samningnum.

Í ljósi alls framangreinds sé konunni nauðugur einn sá kostur að höfða dómsmál, hvar farið er fram á lögskilnað, en öðru hjóna sé heimilt að höfða dómsmál og krefjast skilnaðar samkvæmt hjúskaparlögum.


Tengdar fréttir

Ekki séð eiginkonuna síðan tveimur vikum eftir giftingu

Kona á fertugsaldri hefur höfðað mál á hendur annarri konu níu árum yngri þess efnis að henni verði veittur lögskilnaður. Hún segir konuna hafa gift sér til málamynda til að geta dvalið í Evrópu án vandræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×