Schillaci greindist með krabbamein í ristli fyrir tveimur árum. Hann var lagður inn á spítala í heimaborg sinni, Palermo á Sikiley, í síðustu viku og lést svo í dag.
Schillaci lék sextán landsleiki fyrir Ítalíu og skoraði sjö mörk. Sex þeirra komu á HM á Ítalíu 1990.
Hann var lítt þekktur fyrir mótið en sló eftirminnilega í gegn í ítalska liðinu sem vann til bronsverðlauna á heimavelli. Schillaci var markakóngur HM og valinn besti leikmaður keppninnar.
Schillaci tókst hins vegar engan veginn að fylgja velgengninni á HM eftir og var farinn að spila í Japan 29 ára.
Schillaci hóf ferilinn með Messina en lék einnig með Juventus, Inter og Júbilo Iwata í Japan.
Með því að smella hér má sjá langt viðtal sem Gary Lineker tók við Schillaci fyrir YouTube-síðu FIFA.