Lífið

Gáfu dótturinni þrjú nöfn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Júlí og Þórdís með dótturina.
Júlí og Þórdís með dótturina.

Listaparið Júlí Heiðar Halldórsson og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, gáfu dóttur sinni nafn við hátíðlega athöfn um helgina. Parið greindi frá gleðitíðindunum í færslu á Instagram.

„Dótt­ir okk­ar fékk nafnið sitt á þess­um sól­ríka haust­degi. Kolfinna Anna Kolka Júlí­dótt­ir. Þrjú nöfn eins og Bjart­ur stóri bróðir,“ skrifaði parið við færsl­una.

Leikarinn Björgvin Franz Gíslason leiddi athöfnina sem fór fram í heimahúsi.

Stúlkan kom í heiminn 9. maí síðastliðinn og er fyrsta barn þeirra saman en fyrir eiga þau hvort sinn strákinn. Þau Þórdís og Júlí voru í sama bekk í Listaháskóla Íslands og höfðu verið vinir í langan tíma áður en ástin tók völd. Þau trúlofuðu sig í maí árið 2022.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.