Sjarmurinn af sérverslun lifi góðu lífi Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 7. október 2024 15:10 Aron Elí er spenntur fyrir opnuninni. Hulda Bjarna Eigandi fiskbúðar sem opnar í Laugardalnum í dag segir að þó fiskbúðum fækki ört í borginni sé ákall frá íbúum um sérverslanir í nærumhverfinu. Hugmyndin um kaupmanninn á horninu eigi enn við.
Á dögunum var greint frá því að elstu starfandi fiskbúðinni á höfuðborgarsvæðinu, Fiskbúðinni í Trönuhrauni í Hafnarfirði, hafi verið lokað. Fiskikóngurinn stakk niður penna við þessi tímamót og segir sorglegt hve hratt fiskverslanir týna tölunni. Þegar hann byrjaði í bransanum átján ára hafi um þrjátíu fiskbúðir verið í Reykjavík, nú séu þær sex. Þróunin virðist hafa verið á þessa leið í gegnum árin. Í Helgarpóstinum kom fram árið 1981 að hinn hefðbundni fisksali gegni æ minna hlutverki í innkaupavenjum fólks. Fjöldi fiskbúða hafi á síðustu þrjátíu árum fækkað úr 50 til 60 í rúmlega 20 á stórhöfuðborgarsvæðinu. Ein þeirra verslana sem hætti nýlega störfum er Fiskbúðin við Sundlaugaveg í Laugardal. Töluverð sorg ríkti í hverfishópnum á Facebook þegar versluninni var lokað í vor. Nú hafa nýir eigendur tekið við rekstrinum og opna þeir dyr sínar í dag. Fjallað var um fækkun fiskbúða og yfirvofandi opnun í fréttum Stöðvar 2 á dögunum. Nýr eigandi segir líklegustu skýringuna á fækkun fiskbúða í borginni vegna þess að varan sé aðgengilegri en áður. Fiskur fáist í flestum matvöruverslunum auk þess sem fólk kjósi að fá heimsendan mat. „En það er bara svo mikill sjarmur að koma inn í sérverslun, fá þessa þjónustu. Fá þessa nánd, maður þekkir alltaf fólkið sem kemur. Þannig það er mjög gaman að geta boðið upp á þessa þjónustu því það er enn mikið af fólki sem vill halda í þetta,“ segir Aron Elí Helgason, annar eigandi verslunarinnar. Kaupmaðurinn á horninu eigi enn erindi en þá skipti miklu máli að neytendur versli við sérvöruverslanir. „Ég hef bara trú á því, sérstaklega hérna í þessu geggjaða hverfi, að fólk taki við því og mæti þeirri áskrorun að koma í fiskbúðina.“
Verslun Mest lesið Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Innlent Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Innlent Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Innlent Holan alls ekki eina slysagildran Innlent Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Innlent Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Innlent Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Innlent Fleiri fréttir Stjórnlaus ásókn í megrunarlyf og „árás“ á flugvöll Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Með ófullnægjandi hjálm þegar banaslys varð „Það er af og frá að ég hafi brotið lög“ Fjölmenntu í Aðalbyggingu HÍ og vilja svör frá rektor „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Áfram lokuð þar sem viðgerðirnar undu upp á sig Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Niðurstaða um Ölfusárbrú væntanleg í þessari viku Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Svandís ræðir við hina formennina og ár af átökum fyrir botni Miðjarðarhafs Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Afgerandi meirihluti með málstað Palestínumanna Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Skiptar skoðanir um umtalaða bókun við EES-samninginn Augljóst að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok Holan alls ekki eina slysagildran Skipti öllu máli að telja drykkina Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Tveir handteknir í tengslum við slagsmál Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Öflugur skjálfti í Bárðarbunguöskju „Hann hverfur ofan í jörðina“ Heppni að ekki fór verr þegar tveggja ára drengur féll niður nokkra metra Risaþotan flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið Sjá meira