
Superglas glösin eru einstaklega falleg og vönduð, fara vel í hendi og veita drykkjunum fágað yfirbragð þrátt fyrir að glerið sé víðs fjarri. Koziol Superglas glösin eru fáanleg í mörgum stærðum og gerðum og henta fyrir heita sem kalda drykki. Glösin haldast kristaltær og rispulaus með aðstoð byltingarkenndrar demantsáferðar. Glösin halda kjörhitastigi drykkjarins lengur og mega fara í uppþvottavél.

Superglas efnið hefur örlítinn sveigjanleika sem gerir þau óbrjótanleg svo þau þola mikla notkun og hnjask án þess að sjái á glösunum. Því eru þau tilvalin í útileguna, partýið, út á pallinn eða með í heita pottinn og laus við alla gleráhættu. Þú getur því bæði treyst litlum höndum fyrir Koziol Superglas og borið fram svalandi þeyting út í garð eða skálað í Superglas kampavínsglösum í garðveislunni, laus við allar áhyggjur um glerbrot eða uppsafnað uppvask. Njóttu þess að bera fram allar gerðir drykkja í Koziol Superglas áhyggjulaust og skelltu svo uppvaskinu í uppþvottavélina í lok dags!


Glösin eru fullkomin blanda hagnýtingar og glæsileika þar sem styrkur mætir stíl og hver sopi gefur tilefni til að fagna. Falleg og endingargóð glös sem líta út eins og fyrsta flokks gler en hafa alla helstu kosti plastsins.
Koziol Superglas glösin fást meðal annars í Byko og Byggt og búið.
