Þá kom í ljós að DeChambeau verður ekki í Ólympíuliði Bandaríkjanna á leikunum í París.
„Ég er pirraður og vonsvikinn,“ sagði Bryson DeChambeau í viðtali í „The Pat McAfee Show“.
Samkeppnin er mikil um sæti í bandaríska golflandsliðinu. Þeir fjórir karlar sem voru valdir eru allir meðal þeirra sjö efstu á heimslistanum.
Scottie Scheffler, Xander Schauffele, Wyndham Clark og Collin Morikawa munu skipa Ólympíulið Bandaríkjanna í karlaflokki að þessu sinni.
DeChambeau hækkaði sig úr 38. sæti upp í það tíunda á heimslistanum með sigrinum á risamótinu um helgina en það dugði ekki.
„Ég myndi elska það að keppa fyrir hönd Bandaríkjanna,“ sagði DeChambeau. Hann þarf að bíða í fjögur ár eftir þeim möguleika.
Valið í liðið er byggt á stöðu manna á heimslistanum. Þar hefur það komið í bakið á DeChambeau að hann samdi við LIV mótaröðina í Sádí Arabíu. Árangur hans á mótum á vegum LIV telst því ekki til tekna við útreikning á heimslistanum.
DeChambeau er sagður hafa fengið meira en hundrað milljónir dollara fyrir samning sinn við LIV eða meira en fjórtán milljarða íslenskra króna.
„Ég tók stóra ákvörðun og það hafði sínar afleiðingar. Ég ber virðingu fyrir því. Vonandi getum við samt leyst þetta sem fyrst,“ sagði DeChambeau og vísar þar til samningaviðræðna milli LIV og PGA um mögulegt samstarf og lausn á deilunum.