Um er að ræða 136,6 fermetra hæð í húsi sem var byggt árið 1950. Í íbúðinni og eru tvö svefnherbergi og eitt baðherbergi. Stofur eru rúmgóðar og bjartar með útgengi á suðursvalir.
Í eldhúsi er vegleg sérsmíðuð innrétting úr fallegum við með hvítri borðplötu. Tignarlegur ískápur frá SMEG í beinhvítu setur skemmtilegan svip á rýmið.
Heimili parsins er innréttað á afar sjarmerandi máta þar sem björt rými, hlýlegur viður og bláir litatónar flæða á milli rýma.
Nánari upplýsingar um eignina má nálgast á fasteignavef Vísis.