Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 21. maí 2024 07:04 Hinrik XIII var handtekinn árið 2022. AP/Boris Roessler Réttarhöld yfir meintum höfuðpaurum valdaránssamsæris í Þýskalandi hefjast í Frankfurt í dag.
Mennirnir, sem eru sjö, eru allir hægri öfgamenn og á meðal þeirra er prinsinn Hinrik XIII, eins og hann kallar sig, en hann er af aðalsættum í Þýskalandi og átti að taka við sem kanslari Þýskalands ef áætlunin hefði gengið upp. Búist er að réttarhöldin taki vel á annað ár en alls eru um 20 sakaðir í málinu. Réttað verður fyrir hinum í aðskildum málum. Höfuðpaurarnir eru sakaðir um að hafa sett á fót hryðjuverkasamtök í júlí 2021 og var þeim ætlað að kollsteypa ríkisstjórn Þýskalands og koma nýjum valdhöfum að. Hugmyndin var að ráðast inn í þýska þingið í Berlín og taka það yfir og hafa svo í framhaldinu samband við Rússa og fá þá til að vernda nýju stjórnina. Saksóknarar segja að Hinrik prins hafi meira að segja reynt að hafa samband við yfirvöld í Rússlandi til að bera hugmyndina undir þá, með astoð rússneskrar konu sem einnig er ákærð en ekki fylgir sögunni hvort þeir hafi virt þau viðlits.
Þýskaland Erlend sakamál Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Óveður gengur yfir landið Innlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Innlent Fleiri fréttir Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Sjá meira