Lífið

Bashar Murad endur­­­­­gerir palestínskt lag föður síns

Lovísa Arnardóttir skrifar
Bashar kemur fram á samstöðutónleikum í Malmö á morgun.
Bashar kemur fram á samstöðutónleikum í Malmö á morgun. Mynd/Fadi Dahabreh

Bashar Murad sendir í dag frá sér smáskífuna, Stone, af væntanlegri plötu sem hann er að vinna með Einari Stef. Lagið er endurgerð af lagi sem hljómsveit föður hans gaf út. 

Bashard Murad ættu margir að þekkja úr Söngvakeppninni en hann lenti í öðru sæti á eftir Heru Björk með lag sitt Wild West. Í tilkynningu um útgáfuna segir að lagið Stone sé endurgerð af laginu „On Man” með palestínsku hljómsveitinni Sabreen sem Said Murad faðir Bashars stofnaði árið 1980.

„Sabreen sömdu þetta magnaða lag á arabísku og það vísar í margt úr veruleika og táknheimi okkar Palestínumanna sem hefur mótar mig sem manneskju. Við Einar ákváðum að endurgera lagið og gera nýjan texta á ensku,” segir Bashar í tilkynningunni.

Hann segir lagið í þjóðlagapoppstíl eins og Wild West. Textinn fjallar um baráttu Palestínufólks en um leið vonina um betra líf.

Skiptir máli að eiga fyrirmyndir

Bashar segist hafa notið góðs af Sabreen og upptökustúdíó hljómsveitarinnar. Ungir palestínskir tónlistarmenn fengu afnot af stúdíóinu eftir að hljómsveitin lét af störfum. Hann segir stúdíóið hafa verið leikvöll sinn fyrir alls kyns tilraunir sem gáfu honum tækifæri til að þróast sem tónlistarmaður.

„Það skiptir máli að eiga fyrirmyndir og geta speglað sig í sinni eigin menningu og það varð kveikjan af þessu lagi sem við Einar höfum svo fundið stað í sköpunarferlinu á plötunni okkar,” segir Bashar.

Bashar heldur tónleika í Iðnó laugardaginn 18. maí næstkomandi ásamt Einari. Einnig kemur hann einnig fram á Falastin Vision í Malmö, á morgun, laugardaginn 11. maí, á samstöðutónleikum með Palestínu. Tónleikarnir eru haldnir á sama tíma og lokakeppni Eurovision fór fram. 

Lokakeppni á morgun

Seinni undankeppni fór fram í gær og var Ísrael meðal þeirra þjóða sem komst áfram í lokakeppnina. Þátttöku þeirra hefur verið mótmælt harðlega víða en samkvæmt veðbönkum eru þau nú líkleg til að sigra keppnina. 


Tengdar fréttir

Fer fögrum orðum um júrólag Ísraels

Hera Björk Þórhallsdóttir Eurovisionfari fer fögrum orðum um framlag Ísraels í Eurovision, Hurricane, í viðtali við ísraelska Eurovision-miðilinn Euromix á kynningarviðburði keppninnar í Madríd á laugardaginn.

„Ég get ekki gert upp á milli barna“

Hera Björk er á leið út til Svíþjóðar þar sem hún mun verða fulltrúi þjóðarinnar í Eurovision. Glaðbeitt. Hún var í hlaðvarpsþætti Einars Bárðarsonar fyrir skömmu og segist ekki geta beðið.

Fleiri vildu lag Heru en Bashar til Malmö

Fleiri Íslendingar er óánægðir með framlag Íslands í Eurovision 2024, lagið Scared of Heights í flutningi Heru Bjarkar, en ánægðir, eða rúm fjörutíu prósent. Þó vildu fleiri á sama tíma að lagið yrði framlag Íslands frekar en lagið Wild West með Bashar Murad sem lenti í öðru sæti. Þá vilja flestir að Ísland sitji hjá í Eurovision í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.