„Endurnýjuð spá um goslok í Sundhnúksgígaröðinni” er fyrirsögn nýs pistils á eldfjallabloggi Haraldar, vulkan.blog, þar sem rifjuð er upp spá sem þeir birtu þann 14. mars síðastliðinn undir titlinum „Einföld spá um lok umbrota í Grindavík”. Þar vöktu þeir athygli á því að gögn Veðurstofunnar sýndu að kvikuflæði hefði stöðugt minnkað og settu fram þá kenningu að innstreymi kvikunnar fylgdi línulegri þróun.
„Þessi viðleitni okkar að beita áreiðanlegum gögnum um kvikuflæði til að spá um goslok vakti ýmsa umræðu sem var yfirleitt jákvæð, að undanskildum viðbrögðum fulltrúa Almannavarna, sem lýsti framlagi okkar sem „tölfræðileik” (Mbl. 18. mars, 2024). Þessi ummæli benda til þess að Almannavarnir skilji því miður ekki frumgögnin, sem er reyndar töluvert áhyggjuefni,” segir í nýja pistlinum.
„Nú hefur Veðurstofa Íslands birt nýjar tölur um hraunflæði frá Sundhnúksgígaröðinni, þær fyrstu síðan hinn 11. mars 2024,” segir ennfremur og er vísað í skýringarmynd sem sýni kvikuflæði fyrir þá sjö atburði sem hafi gerst til þessa og flestir leitt til eldgosa.

„Okkur varð strax ljóst að það er kerfisbundin breyting á kvikurennsli í þessum sjö tilfellum, þannig að það dregur stöðugt úr kvikurennsli. Þess vegna sýnum við gögnin í línuriti af kvikurennsli á móti tíma. Þar mynda þessi sjö tilfelli ferli sem stefnir niður á lárétta ásinn og gefa okkur þá grundvöll til að setja fram spá um goslok í byrjun júlí 2024. Nýjustu gögn styðja því við fyrri spá okkar um framtíð og lok virkni í Sundhnúksgígaröðinni.”

Í lok pistilsins eru umbrotin við Grindavík borin saman við Kröfluelda.
„Töluverð umræða hefur verið í gangi varðandi ástand og framvindu mála í þessu gosi og sýnist sitt hvorum um framhaldið. Það er tiltækast að bera þessa virkni saman við Kröfluelda, sem er svipað sprungugos og virkni þess mjög vel skráð. Eitt athyglisvert varðandi Kröflu er að þegar hún hætti að gjósa var staða landriss há og hélt áfram að rísa um tíma. Það er því ekki ólíklegt að Sundhnúksgígaröðin hagi sér eins.”
Birt er línurit sem sýnir hreyfingu á gps-stöð í Svartsengi þessa viku.
„Það er ljóst að hér er enn landris í gangi. En það er hugsanlegt að, eins og í Kröflu, haldi landris áfram að vissu marki eftir gos, án þess að nýtt gos brjótist fram,” segir í lok greinarinnar á eldfjallabloggi Haraldar.
Í nýrri færslu Haraldar Sigurðssonar á eldfjallabloggi sínu undir fyrirsögninni Frekari skýring á kvikurennsli og spá um goslok tekur hann fram að færsla sín á blogginu frá því deginum á undan sé eingöngu hans skoðun og óháð skoðunum Gríms Björnssonar.
Haraldur bætir ennfremur við að gögn um meðalhraunflæði frá gígnum og um að landris í Svartsengi haldi áfram á sama hraða bendi til að um það bil helmingur af kvikunni, sem sé að koma af dýpi, sé að safnast fyrir í kvikuhólfinu en hinn helmingur sé að flæða upp á yfirborð i Sundhnúksgígaröðinni.
Frétt Stöðvar 2 frá því í marsmánuði um spá þeirra Haraldar og Gríms má sjá hér: