Skoðun

Höfnum hernaðar­banda­laginu!

Hópur íslenskra friðarsinna skrifar

Þann 30. mars árið 1949, fyrir 75 árum, samþykkti Alþingi þingsályktunartillögu um inngöngu í Atlantshafsbandalagið. Með því voru háværar kröfur um að bera Nató-aðildina undir þjóðaratkvæði að engu hafðar og mörg þeirra sem tóku þátt í mótmælum þennan örlagaríka dag máttu þola harða dóma og miklar refsingar. Inngangan í Nató var óheillaspor.

Með þessari ákvörðun urðu Íslendingar eina herlausa ríkið í veröldinni sem er meðlimur í hernaðarbandalagi. Á grunni aðildarinnar voru opnaðar herstöðvar í landinu og vegna hennar eru enn í dag talsverð hernaðarumsvif í og við landið, s.s. heræfingar, flug orrustuþotna og kafbátaleit.

Nató er bandalag margra stærstu vopnaframleiðsluríkja heims, sem mörg hver eiga blóði drifna sögu stríðsrekstrar og hernaðaríhlutana um víða veröld. Bandalagið hefur átt beinan og óbeinan þátt í fjölda styrjalda, einkum eftir að Kalda stríðinu lauk. Þar gafst gott tækifæri til að leggja bandalagið niður, en því miður var í staðinn ákveðið að færa út kvíar þess, líkt og stríð á Balkanskaga, Afganistan og Líbýu sanna. Að auki hefur Nató átt í nánu hernaðarsamstarfi við ríki á borð við Ísrael og Sádi Arabíu.

Kjarnorkuvopn eru grundvöllur hernaðarstefnu Nató og hefur bandalagið ekki útilokað beitingu þeirra að fyrra bragði. Vegna þessa hefur Ísland, líkt og önnur Nató-ríki, staðið gegn sáttmála Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum. Bandalagið gerir einnig kröfur um að aðildarríkin eyði svimandi háum fjárhæðum í hernaðarmál, sem tryggir vopnaframleiðendum stórgróða en kemur um leið í veg fyrir að sömu fjármunum sé varið til uppbyggilegra verkefna.

Í stað þess að leggja Atlantshafsbandalaginu lið sitt og verða þar með ábyrgt fyrir verkum þess og stefnu teljum við undirrituð að Íslendingar ættu fremur að standa utan allra hernaðarbandalaga og leggja ætíð lóð sín á vogarskálar friðar og réttlætis í veröldinni. Ísland úr Nató!

Andrea Helgadóttir

Varaborgarfulltrúi

Reykjavík

Anna Ragna Fossberg Jóhönnudóttir

Næringarfræðingur og rithöfundur

Reykjavík

Arnaldur Grétarsson

Sviðsstjóri

Reykjavík

Auðna Ágústsdóttir

Hjúkrunarfræðingur

Reykjavík

Auður Lilja Erlingsdóttir

Deildarstjóri

Reykjavík

Bergljót Kristjándsdóttir

fv. prófessor

Reykjavík

Birna Gunnarsdóttir

Verkefnastjóri

Reykjavík

Bjarni Harðarson

Bóksali

Selfossi

Björk Vilhelmsdóttir

Félagsráðgjafi

Reykjavík

Bogi Reynisson

Tæknimaður

Reykjavík

Davíð Hörgdal Stefánsson

Rithöfundur

Reykjavík

Drífa Snædal

Talskona Stígamóta

Reykjavík

Einar Bergmundur

Forstöðumaður

Reykjavík

Einar Ólafsson

Rithöfundur

Kópavogi

Elín Oddný Sigurðardóttir

Teymisstjóri

Reykjavík

Eygló Jónsdóttir

Rithöfundur

Hafnarfirði

Eyrún Ósk Jónsdóttir

Rithöfundur

Hafnarfirði

Friðfinnur Örn Hagalín

Kerfisstjór

Reykjavík

Friðrik Atlason

Tónlistarmaður

Reykjavík

Gestur Ásólfsson

Rafvirki

Reykjavík

Guðbjörg Þ. Örlygsdóttir

Líffræðingur

Reykjavík

Guðjón Ragnar Jónasson

Kennari og rithöfundur

Reykjavík

Guðrún Þórs

Verkefnastjóri

Akureyri

Gunna Lára Elsu Pálmadóttir

Sérfræðingur

Snæfellsbæ

Gunnar Smári Egilsson

Blaðamaður

Reykjavík

Gunnar Þór Jónsson

Vélvirkja- og bifvélavirkjameistari á eftirlaunum

Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Guttormur Þorsteinsson

Formaður Samtaka hernaðarandstæðinga

Reykjavík

Hafdís Erla Hafsteinsdóttir

Doktorsnemi í sagnfræði

Arnarvatni

Harpa Kristbergsdóttir

Aðgerðarsinni

Reykjavík

Haukur Már Haraldsson

Setjari og framhaldsskólakennari á eftirlaunum

Reykjavík

Helgi M. Sigurðsson

Sagnfræðingur

Kópavogi

Héðinn Björnsson

Menntaskólakennari

Kaupmannahöfn

Hrafnkell Lárusson

Sagnfræðingur

Reykjavík

Ingibjörg Haraldsdóttir

Kennari

Reykjavík

Ingibjörg Stefánsdóttir

Leiðsögumaður

Reykjavík

Ingibjörg Þórðardóttir

Framhaldsskólakennari

Neskaupstað

Ingunn Snædal

Þýðandi, skáld og kennari

Reykjavík

Jovana Pavlović

Mannfræðingur

Borgarnesi

Jóhann Geirdal

fv. skólastjóri

Suðurnesjabæ

Jón Jónsson

Þjóðfræðingur

Ströndum

Jóna Benediktsdóttir

Skólastjóri Varmárskóla

Reykjavík

Kari Ósk Grétudóttir

Myndlistarkennari og ljóðskáld

Osló

Karl Héðinn Kristjánsson

Fjölmiðlamaður

Reykjavík

Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir

Doktorsnemi í heimspeki

Reykjavík

Lea María Lemarquis

Eðlisfræðikennari

Reykjavík

Lowana Veal

Aðgerðarsinni og líffræðingur

Reykjavík

Lóa Hjálmtýsdóttir

Myndlistarkona og rithöfundur

Reykjavík

Magnea J. Matthíasdóttir

Þýðandi

Reykjavík

Níels Alvin Níelsson

Sjómaður

Árborg

Sanna Magdalena Mörtudóttir

Borgarfulltrúi

Reykjavík

Sigríður Gísladóttir

Dýralæknir

Ísafirði

Sigurbjörg Gísladóttir

Efnafræðingur

Reykjavík

Sigurður Erlingsson

Landvörður

Mývatnssveit

Sigurður Flosason

Bifreiðastjóri

Kópavogi

Sigurlaug Gunnlaugsdóttir

Sagnfræðingur

Reykjavík

Sigvarður Ari Huldarsson

Framkvæmdastjóri og tæknimaður

Reykjavík

Snæbjörn Guðmundsson

Jarðfræðingur

Reykjavík

Soffía Sigurðardóttir

Friðarsinni

Selfossi

Sólveig Anna Jónsdóttir

Formaður Eflingar

Reykjavík

Stefán Pálsson

Sagnfræðingur

Reykjavík

Steinar Harðarson

Vinnuverndarráðgjafi og athafnastjóri

Reykjavík

Steinunn Þóra Árnadóttir

Alþingismaður

Reykjavík

Steinunn Sigþrúðardóttir Jónsdóttir

Lagerstarfsmaður

Reykjavík

Steinunn Rögnvaldsdóttir

Mannauðsráðgjafi

Reykjavík

Steinþór Heiðarsson

Bóndi

Tjörnesi

Steinþór Steingrímsson

Verkefnisstjóri

Reykjavík

Sunna Björk Þórarinsdóttir

Bókasafns- og upplýsingafræðingur

Reykjavík

Sveinn Kristinsson

fv. kennari

Akranesi

Sverrir Jakobsson

Prófessor í sagnfræði

Reykjavík

Tinna Þorvalds Önnudóttir

Leikkona, söngkona og myndhöfundur

Reykjavík

Torfi Stefán Jónsson

Sagnfræðingur

Reykjavík

Unnur Tryggvadóttir Flóvenz

Verkefnastjóri

Kópavogi

Þorvaldur Þorvaldsson

Trésmiður

Reykjavík

Þrándur Þórarinsson

Listmálari

101

Ögmundur Jónasson

fv. Alþingismaður

Reykjavík




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×