Börsungar í átta liða úrslit eftir sannfærandi sigur Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 12. mars 2024 21:55 Skoraði fyrsta mark Barcelona í kvöld. EPA-EFE/Alberto Estevez Barcelona er komið í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir góðan 3-1 sigur á Napolí þegar liðin mættust í Katalóníu í kvöld. Það var allt í járnum eftir 1-1 jafntefli liðanna á Ítalíu en í kvöld voru það heimamenn í Barcelona sem sýndu sínar bestu hliðar strax í upphafi. Tvö mörk á rétt rúmlega tveimur mínútum sneru einvíginu þeim í hag. Hinn tvítugi Fermín López kom Barcelona yfir eftir stundarfjórðung með góðu skoti eftir undirbúning Raphinha. Örskömmu síðar átti Raphinha skot í stöng og ekki löngu eftir það var staðan orðin 2-0. Bakvörðurinn João Cancelo með markið eftir að boltinn hrökk til hans inn á teig eftir skot Raphinha. Raphinha átti frábæran leik í kvöld.EPA-EFE/Siu Wu Gestirnir voru ekki á þeim buxunum að gefast upp og eftir hálftímaleik minnkaði Amir Rrahmani muninn með góðu skoti eftir undirbúning Matteo Politano. Þrátt fyrir fín færi á báða bóga var staðan enn 2-1 í hálfleik og Barcelona yfir í einvíginu. Síðari hálfleikur var svipaður þó svo að gestirnir væru meira með boltann. Þeim tókst ekki að finna glufur á vörn Börsunga og á endanum var það markamaskínan Robert Lewandowski sem gulltryggði farseðilinn í 8-liða úrslit. Skoraði venju samkvæmt.EPA-EFE/Alberto Estevez Það gerði Lewandowski með einfaldri afgreiðslu eftir undirbúning Sergi Roberto. Staðan orðin 3-1 og það reyndust lokatölur í kvöld. Barcelona vinnur einvígið því 4-2 og er komið í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Fótbolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti