Innlent

Sýknuð af á­kæru fyrir að ljúga nauðgun upp á mann sem fyrir­fór sér

Árni Sæberg skrifar
Atvik þau sem málið snerist að áttu sér stað á Húsavík.
Atvik þau sem málið snerist að áttu sér stað á Húsavík. Vísir/Vilhelm

Tuttugu og þriggja ára gömul kona hefur verið sýknuð af ákæru fyrir að hafa borið mann röngum sökum um að hann hafi nauðgað henni. Tæpum mánuði eftir að maðurinn var handtekinn eftir kæru konunnar fyrirfór hann sér.

Þetta var niðurstaða Héraðsdóms Norðurlands eystra, sem kveðinn var upp klukkan 15 í dag. Dómurinn hefur ekki verið birtur á vef dómstólanna. Gerð verður nánari grein fyrir niðurstöðunni þegar dómurinn birtist.

Ákærð fyrir rangar sakargiftir en maðurinn aldrei ákærður

 Í ákæru á hendur konunni sagði að höfða bæri sakamál fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra á hendur konunni fyrir rangar sakargiftir, með því að hafa með rangri kæru og röngum framburði hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, sunnudaginn 11. júlí og fimmtudaginn 15. júlí árið 2021, leitast við að koma því til leiðar að Dziugas Petrauskas, litháískur knattspyrnumaður og íbúi á Húsavík, yrði sakaður um eða dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn konunni, í heimahúsi á Húsavík, aðfararnótt sunnudagsins 11. júlí sama ár.

Sjaldséð ákvæði

Í umfjöllun Vísis um málið á sínum tíma sagði að ákvæði hegningarlaga um rangar sakargiftir væri örsjaldan beitt í framkvæmd. Með snöggri leit á vef dómstólanna má sjá að það er oftast gert í ölvunarakstursmálum, þar sem ökumenn hafa sagst vera einhver annar en þeir eru í raun og veru.

Í samtali við Vísi sagði Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari að það að kynferðisbrot sé fellt niður þýði ekki að það liggi eitthvað fyrir um að kærandi hafi verið að ljúga. Sönnunarbyrði í slíkum málum sé sú sama og þegar um ákæru um kynferðisbrot er að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×