Stríðið í Úkraínu háð í Súdan Samúel Karl Ólason skrifar 7. mars 2024 08:00 Abdel Fattah al-Burhan með hermönnum sínum í maí í fyrra. Herinn átti undir högg að sækja á þessum tima og leitaði al-Burhan til Úkraínu eftir aðstoð. Getty/Súdanski herinn Þegar herforinginn Abdel Fattah al-Burhan, leiðtogi hers Súdan, átti í miklu basli síðasta sumar vegna uppreisnar fyrrverandi samstarfsmanns hans, Mohamed Hamdan Daglo, leiðtogi öflugra sveita sem kallast RSF, hringdi hann til Úkraínu eftir aðstoð. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, svaraði kallinu.
Nokkrum vikum síðar lentu um hundrað úkraínskir sérsveitarmenn, flestir frá leyniþjónustu úkraínska hersins (GUR), í Súdan og tóku þátt í að berjast gegn RSF. Þessir sérsveitarmenn hafa meðal aðstoðað hermenn gegn RSF og rússneskum bakhjörlum uppreisnarmannanna í Wagner Group málaliðahópnum. Meðal annars tóku þeir þátt í að reka RSF-liða frá flestum hverfum Khartoum, höfuðborgar Súdan, og gáfu þeir hermönnum nýja riffla og hljóðdeyfa, auk þess sem þeir hafa þjálfað hermenn. Þetta hafa þeir gert í tveimur hópum. Samkvæmt frétt Wall Street Journal hafði Selenskí góðar og gildar ástæður til að koma Burhan til aðstoðar. Eftir að innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar 2022 hafði Burahn sent Úkraínumönnum vopn og þar að auki hafa Rússar notað Súdan til að fjármagna stríðsrekstur sinn í Úkraínu með gullgreftri og vopnasölu til RSF. Wagner í Afríku Wagner Group var áður stýrt af auðjöfrinum Jevgení Prígósjín en eftir að hann dó þegar sprenging varð í flugvél hans yfir Rússlandi í fyrra, tók varnarmálaráðuneyti Rússlands yfir stjórn málaliðahópsins. Í gegnum hópinn grafa Rússar eftir gulli í nokkrum löndum í Afríku og nýta sér aðrar auðlindir sem þeir hafa aðgang að þar. Sjá einnig: Kreml tekur yfir stjórn Wagner í Mið-Afríkulýðveldinu Málaliðar Wagner hafa starfað víða um Afríku á undanförnum árum og má þar nefna lönd eins og Líbíu, Malí, Búrkína Fasó og Mið-Afríkulýðveldið. Sjá einnig: Síðustu dagar Prígósjíns - Kepptist við að halda veldi sínu saman Embættismenn sögðu blaðamönnum WSJ að fyrir stríðið sem hófst síðasta haust væri áætlað að einungis þriðjungur alls gulls sem grafið væri upp í Súdan væri skráð opinberlega. Um fjórum milljörðum dala í gulli væri stolið á ári hverju og mikill hluti þess er talinn enda í höndum Rússa. Fregnir hafa áður borist af úkraínskum sérsveitarmönnum í Súdan en frétt WSJ varpar mun meira ljósi á aðgerðir þeirra þar. Einn viðmælandi WSJ, hermaður sem leiddi eitt teymi Úkraínumanna í Súdan, sagði ekki eingöngu hægt að berjast við Rússa í Úkraínu. „Ef þeir eru með gullnámur í Súdan, þurfum við að gera þær óarðbærar,“ sagði hermaðurinn sem gengur undir nafninu Prada. Nutu forskot í myrkrinu Úkraínsku hermennirnir komust fljótt að því að hernaðurinn í Súdan var annars eðlis en þeir voru vanir. Hermenn voru illa þjálfaðir og agi lítill innan hersins, þar sem hermenn höfðu ekki fengið greitt um langt skeið. Þá voru hermenn og uppreisnarmenn lítið sem ekkert merktir og voru voðaskot tíð. Sérsveitarmennirnir nutu sérstakra yfirburða að nóttu til, þar sem þeir voru þjálfaðir í næturárásum og búnir nætursjónaukum. Hvorki herinn né uppreisnarmenn gerðu árásir á næturnar. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, fundaði síðasta september með Fattah al-Burhan, á flugvelli í Írlandi. Þá sagði Selenskí að þeir hefðu meðal annars tala um sameiginlega erfiðleika þeirra og þá sérstaklega um ólöglega vígahópa sem fjármagnaðir eru af yfirvöldum í Rússlandi. Leyniþjónusta úkraínska hersins (GUR) er leidd af Kyríló Búdanóv. Hann er 38 ára gamall fyrrverandi sérsveitarmaður og hefur heitið því að herja á Rússa, hvar sem þá má finna í heiminum. GUR hefur notið mikils stuðnings frá Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) í formi þjálfunar og búnaðar. Þennan stuðning eru njósnarar og sérsveitarmenn GUR sagðir hafa notað til árása í Rússlandi og víðar. Þá tóku hermennirnir úkraínsku upp á því að yfirgefa herstöð sína á kvöldin í smáum hópum, finna skotmörk og ráðast á þau. Í einu tilfelli skutu þeir eldflaug inn um glugga íbúðar sem málaliðar Wagner notuðu og notuðu svo dróna til að varpa sprengjum á málaliða sem voru sendir á vettvang í kjölfarið. Árásir þessar komu RSF-liðum líka verulega á óvart en áður en Úkraínumennirnir mættu á sviðið voru þeir vanir að sofa undir berum himni, nærri víglínunni í borginni. Þeir hættu því fljótt. Annar hermaður, sem kallast King og leiddi fyrsta hóp úkraínskra hermanna í Súdan, sagði að með því að gera árásir á næturnar ættu þeir auðveldar með að fara huldu höfði. Báðir hópar úkraínskra hermanna sem fóru til Súdan eru komnir aftur til Úkraínu en seinni hópurinn sneri aftur fyrr á þessu ári. Leiðtogar beggja hópa segjast ekki hafa misst einn hermann. Ódæði og stríðsglæpir Úkraínsku hermennirnir notuðu reglulega dróna og þar á meðal sjálfsprengidróna sem hermenn Súdan lærðu einnig að nota og eru sagðir hafa gert það með góðum árangri. Úkraínumenn hafa einnig útvegað hernum tyrkneska Bayraktar TB2 dróna sem hægt er að nota til nákvæmra loftárása. Al-Burhan og Daglo tóku höndum saman árið 2021 og frömdu valdarán í Súdan. Í fyrra stóð svo til að innleiða RSF í herinn en Dagalo óttaðist að missa öll sín völd með því að flytja sveitir sínar undir stjórn al-Burhan og hófust átökin þess vegna. Allra fyrst vegnaði hernum vel gegn RSF en taflið snerist þegar Daglo fékk umfangsmikla aðstoð frá Wagner í formi vopna og manna. RSF sótti að Khartoum og sat um borgina um nokkuð skeið. Hernum hefur nú vaxið ásmegin gegn RSF og segja sérfræðingar að það megi að hluta til rekja til notkunar þeirra á drónum og sérsveita súdanska hersins. RSF stjórnar enn hverfum í vesturhluta Khartoum og umfangsmiklum svæðum í vesturhluta og suðurhluta Súdan. Átökin í Súdan hafa á köflum verið mjög grimmileg og hafa báðar fylkingar verið sakaðar um stríðsglæpi. Tugir þúsunda óbreyttra borgara hafa fallið í átökunum og milljónir hafa þurft að flýja heimili sín. Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst ástandinu í Súdan sem martraðakenndu.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Súdan Hernaður Rússland Mest lesið Lýsa eftir Hlyni Innlent Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Innlent Kalli Snæ biðst afsökunar Innlent Bílstjóri ráðherra lagði ríkið Innlent Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Innlent „Er allt komið í hund og kött?“ Innlent Hörður Svavarsson er látinn Innlent Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Innlent Tilgáta um að launmorðingi hafi farið mannavillt þegar Jón Þröstur hvarf Innlent Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Innlent Fleiri fréttir Árásir halda áfram meðan fundað er í Genf Hyggst eftirláta á annað hundrað börnum sínum Telegram-auðinn Skrefi nær því að leyfa dauðvona fólki að leita sér dánaraðstoðar Sporvagni ekið inn í matarvagn í Gautaborg Danskur ráðherra kann ekki að meta auglýsingar Meta Hafnar tillögu um að verja fimm prósentum í varnamál Utanríkisráðherrar funda um Íran í Genf Frestar aftur TikTok-banni Kynnti sér mögulegar árásir: „Að klára verkið þýðir að rústa Fordo“ Áhlaup ICE og óvissan veldur vandræðum Farið í gegnum „kolefnisþakið“ eftir þrjú ár Sagði Khamenei „nútíma Hitler“ og að markmiðið sé að fella hann Geimskipið sprakk á jörðu niðri Finnar draga sig út úr sáttmála gegn jarðsprengjum Leita „fjandskapar“ á samfélagsmiðlum námsmanna Tala látinna í Kænugarði komin í tuttugu og átta Tugir særðir í Ísrael eftir árás Írana á spítala Vill ekki í stríð en segir klerkastjórnina ekki mega eignast kjarnorkuvopn Staðfesta bann á meðferð trans barna Óttast um líf fjölskyldu sinnar í Íran: „Ég sef ekki á nóttunni“ Fjórtán tonna sprengjan sem Ísraela vantar „Kannski geri ég það, kannski geri ég það ekki“ Færðu barn heiladauðrar konu í heiminn Rekja rafmagnsleysið á Íberíuskaga til mistaka orkufyrirtækja Íranir hóta „óbætanlegu tjóni“ skerist Bandaríkin í leikinn Sænsk „sorpdrottning“ hlaut þungan fangelsisdóm fyrir umhverfisbrot Tugir drepnir á meðan þau biðu eftir matarskammti Árásum á Teheran fjölgar og enn einn hershöfðinginn felldur Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Færeyingar vilja fullveldi Sjá meira