Kerfi þessi heita í raun High Mobility Artillery Rocket System (HIMARS) og eru notuð til að skjóta eldflaugum á skotmörk í allt að hundrað kílómetra fjarlægð. Á undanförnum tveimur árum hafa Úkraínumenn notað þessi vopnakerfi með miklum árangri.
Kerfin hafa verið notuð til að skjóta á stórskotaliðsvopn Rússa, stjórnstöðvar, birgðastöðvar og annað á bakvið víglínuna. Þau hafa einnig verið notuð til að fella rússneska hermenn þar sem þeir hafa safnast saman.
Á þessum tveimur árum hafa forsvarsmenn rússneska hersins ítrekað haldið því fram að þeir hafi grandað HIMARS-kerfum. Á mánudaginn hélt varnarmálaráðuneyti Rússlands því fram að tveimur HIMARS-kerfum hefði verið grandað.
Rússar hafa hins vegar aldrei getað fært sönnur fyrir yfirlýsingum sínum, fyrr en núna. Nokkur myndbönd sem hafa verið birt á undanförnum tveimur árum hafa verið af árásum á tálbeitur Úkraínumanna.
Sjá einnig: Plata Rússa til að skjóta dýrum eldflaugum á gervi-HIMARS
Myndband sem birtist á samfélagsmiðlum í gær sýnir hvernig stjórnendur dróna fundu vopnakerfið bakvið víglínuna í Dónetsk-héraði. Dróninn var notaður til að fylgja kerfinu eftir og stýra eldflaugaárás á það.
Bound to happen at some point, but this looks like the first confirmed destroyed HIMARS M142. pic.twitter.com/4AfwofW7yQ
— NOELREPORTS (@NOELreports) March 5, 2024
Samkvæmt frétt Forbes hafa Bandaríkjamenn sent 39 kerfi af gerðinni M142 til Úkraínu og þar að auki hafa Bretar, Þjóðverjar, Ítalir og Frakkar sent 25 eldflauga-kerfi af gerðinni M270, sem eru sambærileg eldflauga-kerfi sem geta borið fleiri eldflaugar en eru á beltum en ekki dekkjum eins og HIMARS og því fara þau ekki jafn hratt yfir.
Bandaríkjamenn hafa ekki sent skotfæri til Úkraínu svo mánuðum skiptir en ríkið var helsti bakhjarl Úkraínu þegar kom að eldflaugum í HIMARS.
Sjá einnig: Fyrsta Abrams skriðdrekanum grandað nærri Avdívka
Úkraínskir hermenn hafa hingað til að mestu notað HIMARS-kerfin á morgnanna og kvöldin. Þeim hefur iðulega verið keyrt á skotstað, eldflaugum skotið og þau færð aftur í felur.
Ekki liggur fyrir hver afdrif áhafnar kerfisins voru né af hverju því var ekið út á akur í dagsbirtu og geymt þar í nægilegan tíma fyrir Rússa til að skjóta eldflaug að því.