Lífið

Ís­lenskur karlagönguhópur á Tenerife

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Karlarnir, sem hittast á hverjum sunnudagsmorgni á Tenerife og ganga sjö til átta kílómetra.
Karlarnir, sem hittast á hverjum sunnudagsmorgni á Tenerife og ganga sjö til átta kílómetra. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Það er vinsælt hjá mörgum að tilheyra gönguhópi eða hlaupahópi en það er ekki bara á Íslandi því á Tenerife er hópur íslenskra karlmanna, sem eru með sinn eigin gönguhóp.

Hér eru við að tala um nokkra hressa karla á besta aldri, sem búa á Tenerife yfir vetrartímann og njóta veðurblíðunnar þar, enda þurfa þeir ekki að hafa áhyggjur af neinni hálku eða hvað þá snjó. 

Hópurinn gengur alla sunnudagsmorgna klukkan 10:00 sjö til átta kílómetra. Vinsælast er að ganga með fram ströndinni.

En mega allir Íslendingar ganga með, karlar og konur líka eða hvernig er það?

„Það hefur einhvern veginn þróast þannig að það eru bara karlar, konurnar vilja bara vera í saumaklúbbum og við getum verið í gönguhópnum,” segir Kjartan M. N. Sigríðarson stofnandi gönguhópsins og glottir við tönn.

Og eruð þið að leysa heimsgátuna í þessum göngum?

„Já, nei, við erum það kannski ekki, við erum með svona karlahjal, um sextugir menn og upp í sjötíu eitthvað, við höfum bara gaman af hlutunum, segjum gamansögur af lífi okkar og reynslu og bara hafa gaman,” segir Kjartan.

Kjartan M.N.Sigríðarson stofnandi gönguhópsins á Tenerife.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Og Kjartan segist að allir karlarnir finni mikinn mun á skrokkunum á sér þegar þeir eru í hitanum á Tenerife.

„Ég hvet þá sem eru slæmir í gigt eða skrokkunum og hafa stoðkerfisvandamál að koma hingað, þá er þetta besti staður í heimi.”

Hvað segir þú með gönguhópinn, er ekki gaman að taka þátt í þessu?

„Jú, þetta er mjög fínt, þetta er alveg nauðsynlegt til að brjóta upp daginn,” segir Karl Sigmar Karlsson félagi í gönguhópnum.

Karl Sigmar Karlsson félagi í gönguhópnum er mjög ánægður með hópinn og er duglegur að ganga með honum.Magnús Hlynur Hreiðarsson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.