Innlent

Hildi­gunnur nýr veður­stofu­stjóri

Atli Ísleifsson skrifar
Hildigunnur Hallgrímsdóttir.
Hildigunnur Hallgrímsdóttir. Stjr

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur tekið ákvörðun um að skipa Hildigunni H. H. Thorsteinsson í embætti forstjóra Veðurstofu Íslands til næstu fimm ára. Hún verður skipuð í embættið frá og með 1. júní næstkomandi.

Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að Hildigunnur sé með BSc gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og hafi lokið MSc gráðu í Technology and Policy frá Massachusetts Institute of Technology árið 2008.

„Hildigunnur hefur starfað sem Chief Technical Officer hjá Innargi A/S í Kaupmannahöfn, frá 2022. Hún starfaði sem verkfræðingur hjá Enex Hf. í Reykjavík á árunum 2005-2006 og sem verkefnastjóri hjá Iceland America Energy Inc. í Los Angeles 2008-2009. Hildigunnur var tæknistjóri í orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna í Washington árin 2009-2011 og síðar teymisstjóri á jarðvarmasviði í sama ráðuneyti 2011-2012. Árið 2013 tók Hildigunnur við stöðu framkvæmdastýru rannsókna- og nýsköpunar hjá Orkuveitu Reykjavíkur og sinnti því starfi til ársins 2022.

Embætti forstjóra Veðurstofu Íslands var auglýst í nóvember sl. og sóttu átta um embættið,“ segir í tilkynningunni.

Hildigunnur tekur við stöðunni af Árna Snorrasyni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×