Innlent

Missti aldrei stjórn á að­stæðum í bað­stofunni

Lovísa Arnardóttir skrifar
World Class-hjónin Björn Leifsson og Hafdís Jónsdóttir fyrir utan World Class Laugum í Laugardal.
World Class-hjónin Björn Leifsson og Hafdís Jónsdóttir fyrir utan World Class Laugum í Laugardal. Vísir/Vilhelm

Björn Leifsson, eigandi World Class, segir ekki rétt að hann hafi ekki ráðið við aðstæður sem upp komu í baðstofu Lauga Spa á laugardaginn. Greint var frá því á Vísi á mánudag að lögreglan hefði haft afskipti af góðkunningjum lögreglunnar í baðstofunni. Sérsveitarmenn hefðu mætt á svæðið.

Í hópi þeirra sem var vísað út var meðal annars Gabríel Douane, 22 ára karlmaður. Hann á að baki nokkurn brotaferil þar á meðal tveggja ára dóm fyrir líkamsárás í Borgarholtsskóla í janúar 2021 og fleiri líkamsárásir.

Þá hefur hann verið hluti af svonefndu Latino-gengi sem komið hefur við sögu í deilum og árásum á skemmtistöðum í miðbæ Reykjavíkur og skotárás við Silfratjörn í Úlfarsárdal þar sem hann særðist lítillega. Það mál er til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem einn karlmaður sætir ákæru fyrir tilraun til manndráps.

Hann segir að um fjóra unga menn og tvær ungar konur hafi verið að ræða en ekki sex karlmenn eins og fram kom í frétt Vísis. Þau hafi mætt snemma eftir gleði næturinnar í baðstofuna. Þau hafi svo truflað aðra gesti með því að spila tónlist

„Síðan var orðið smá háreysti í þeim. Þannig við fórum niður og báðum þau að fara út. Sem þau gerðu,“ segir Björn og að aðeins einn mannanna hafi verið með einhvern smá mótþróa.

Á sama tíma hafi lögreglan verið komin fyrir utan eftir að afgreiðslustúlkurnar hringdu á lögregluna.

Ekki rétt ályktað

Björn segir ekki rétta ályktun sem dregin var af aðkomu sérsveitar að hann hafi ekki ráðið við aðstæðurnar. Hann hafi fylgt þeim sjálfur út. Enginn hafi verið handtekinn en að lögreglan hafi verið viðstödd.

„Það voru engar hótanir eða vopnaburður eða neitt slíkt,“ segir Björn

Kemur eitthvað svona oft upp hjá ykkur?

„Nei, en auðvitað kemur alltaf eitthvað. Við erum með það mikinn fjölda að við erum með vitleysingana líka. Við höfum ekki enn lent í þannig aðstæðum að við ráðum ekki við þær.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×