Innlent

Ó­vænt að­stoð Ís­lendings í Búlgaríu og fengu skýrslurnar af­hentar

Bjarki Sigurðsson skrifar
Mæðgunar Nadia Rós Sherif og Lára Björk Sigrúnardóttir.
Mæðgunar Nadia Rós Sherif og Lára Björk Sigrúnardóttir. Vísir

Fjölskylda Láru Bjarkar Sigrúnardóttur hefur fengið réttu pappíranna til þess að hægt sé að fljúga henni heim til Íslands frá Búlgaríu. Læknar hjá samtökunum SOS International, sem sjá um að meta ástand sjúklinga fyrir sjúkraflug, fara nú yfir skýrslurnar.

Í gær var fjallað um mál Láru Bjarkar hér á Vísi og í kvöldfréttum Stöðvar 2. Hún liggur inni á St. Martins-spítalanum í borginni Varna á austurströnd Búlgaríu eftir að hafa fengið sýklasótt sem þróaðist út frá þvagfærasýkingu. Vegna veikindanna fékk hún blóðsýkingu í nýrun og lifrina og er komin með drep í fingur og tær sem gæti þurft að fjarlægja. 

 

Lára vill að allar aðgerðir á sér verði framkvæmdar á Íslandi og hefur fjölskyldan í viku reynt að fá réttu pappírana til þess að koma henni í sjúkraflug. Spítalinn hafði lítinn áhuga á að afhenda pappírana og skelltu starfsmenn á fólk þegar reynt var að fá gögnin. 

Íslendingur í Varna kom þeim til bjargar

Í yfirlýsingu sem dóttir Láru, Nadia Rós Sheriff, sendi fréttastofu segir að eftir fréttaflutning gærdagsins hafi Íslendingur búsettur í Varna samband við fjölskylduna. Sá talar ágæta búlgörsku og bauðst til þess að sækja börn Láru sem mætt eru til borgarinnar og túlka fyrir þau á spítalanum í dag. 

Það varð til þess að þau fengu gögnin afhent og komu þeim áfram til samtakanna SOS International þar sem læknar fara nú yfir skýrslurnar og meta hvort hægt sé að fljúga með Láru til Íslands til þess að koma henni í aðgerð þar. 

Ræðismaðurinn hundruð kílómetra í burtu

Lára er tryggð hjá tryggingarfélaginu Verði og hafa starfsmenn þar staðfest við fjölskylduna að félagið sé tilbúið að taka á sig hluta kostnaðar við sjúkraflugið.

Fjölskyldunni þykir það leitt að þann tíma sem þau hafa verið úti hafi borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins aldrei boðið þeim aðstoð túlks heldur einungis bent þeim á að ræða við ræðismann í Sofiu, höfuðborg Búlgaríu, sem er hinum megin í landinu í 440 kílómetra fjarlægð. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×