Innlent

Lög­reglan leitar manns

Atli Ísleifsson skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum.

Maðurinn er vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en ekki er tekið fram af hverju verið er að leita mannsins. 

„Ef einhver þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hin sömu einnig beðin um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is

Þótt myndirnar séu vissulega óskýrar má ætla að þær geti gefið vísbendingar um hver maðurinn er,“ segir í tilkynningunni.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×